Innlent

Eldri borgari fékk klám í staðinn fyrir sænska ríkissjónvarpið

„Þetta er fyrir neðan allar hellur," segir sjötug kona frá Akureyri sem var svipt sænska ríkissjónvarpinu síðasta haust en í staðinn fékk hún klámrásina Hustler.

Konan var verulega ósátt en hún gerðist áskrifandi að fimm sjónvarpsstöðvum hjá 365 miðlum. Stöðvarnar sem hún gerðist áskrifandi að voru teiknimyndastöðin Cartoon Network, danska ríkissjónvarpsstöðin DR1, sænska ríkissjónvarpið SVT1, Sky News og Discovery.

Það var svo í haust sem sænska stöðin hvarf skyndilega og í staðinn mátti finna klámrásina Hustler.

„Þetta er hálfgerður fjölskyldupakki sem við vorum að kaupa," segir Konan en hún reyndi strax að fá svör við því hversvegna sænska ríkissjónvarpinu var skipt út fyrir klámið. Það gekk erfiðlega að hennar sögn. Að lokum fékk hún endanlegt svar: „Okkur var sagt að þetta væri bara landsbyggðarpakkinn. Þetta ætti að vera svona út á landi en ekki syðra."

Konan, sem vill ekki láta nafn síns getið er sjötug en maðurinn hennar er um áttrætt.

„Svo er manni skammtaður þessi andskoti. Fyrirgefðu að ég skuli taka svona til orða," segir konan sem er ekki skemmt yfir landsbyggðarpakkanum en sjálfri þykir henni þetta mikill ruddaskapur og dónaskapur.

Á áskriftasíðunni má finna útskýringar á landsbyggðarpakkanum. Þar er honum lýst svona: „Pakkinn inniheldur brot af því besta sem fjölvarpið hefur uppá að bjóða; Fréttir, fræðslu, skemmtun, barnaefni, scandinavíu og erótík."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×