Allt féð verði notað í viðhald á vegum 25. maí 2010 05:00 Vegagerðarmenn segja að minna viðhald muni strax koma grimmilega niður á öllum þeim vegum sem ekki hafa verið klæddir bundnu slitlagi.fréttablaðið/gva
Sveitarstjórnarmenn og forsvarsmaður Vegagerðarinnar telja að viðhald og þjónusta eigi að vera í forgangi næstu árin á kostnað nýframkvæmda. Þeir segja gott dæmi um niðurskurð til vegamála að aðeins tólf milljónir króna eru eyrnamerktar vegamálum á Norðurlandi vestra á gildistíma samgönguáætlunar til ársins 2012. Svipaða sögu er að segja um allt land. Lögð hefur verið fram á Alþingi þingsályktunartillaga um fjögurra ára samgönguáætlun 2009-2012. Þegar framlög til vegamála í Skagafirði og Húnavatnssýslum eru skoðuð kemur fram að upphæðin er öll mismunur kostnaðaráætlana fjögurra verkefna og fjárveitinga til þeirra árið 2009. Engin framlög eru tiltekin í þingsályktunartillögunni fyrir árin 2011 og 2012. Jón Óskar Pétursson, framkvæmdastjóri Samtaka sveitarfélaga á Norðurlandi vestra, segir svæðið ekkert einsdæmi heldur sé þetta ástand gegnumgangandi. Hann segir engan fara fram á stórar nýframkvæmdir. „En þegar verið er að skera niður framlög til vegamála hlýtur forgangsröðin að vera að verja það sem fyrir er. Að öðrum kosti eru menn að eyðileggja vegakerfið. Þetta er dýrasta lán sem hægt er að taka. Svo eru öryggismálin í þessu samhengi ótalin.“ Jón Óskar minnir á að allir þungaflutningar á milli Reykjavíkur og Akureyrar fari um vegi á svæðinu. Í því ljósi hljóti öllum að vera ljóst að lágmarksþörf til framkvæmda í vegamálum sé hvergi nærri mætt. Magnús V. Jóhannsson, svæðisstjóri Vegagerðarinnar á Norðvesturlandi, segir að það fjármagn sem tiltekið er í samgönguáætlun eftir svæðum segi ekki alla söguna, en það sé vissulega af skornum skammti. Fjármagn til þjónustu og viðhalds er sér liður í samgönguáætluninni. Vegagerðin tekur ákvörðun um hvernig fénu er varið, segir Magnús, og það liggi fyrir að Norðvesturland muni njóta þess að hluta. Hann tekur undir það sjónarmið að leggja ætti megináherslu á að verja þau mannvirki sem fyrir eru. „Peningar til viðhalds minnka mjög mikið og af því höfum við vegagerðarmenn mestar áhyggjur.“ Hann segir vegakerfið á Norðvesturlandi í ásættanlegu ástandi og þungatakmarkanir muni brátt heyra sögunni til. Hins vegar megi spyrja sig hversu lengi vegakerfið þar, og annars staðar á landinu, þolir fjársvelti, segir Magnús. svavar@frettabladid.is
Mest lesið Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Innlent Flugstjórinn þögull sem gröfin Innlent Gera ekki aðra atlögu Innlent „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Innlent Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi Innlent Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Innlent Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Innlent Biður strengjabrúður Orbáns um að segja af sér Erlent Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Innlent Trump hjólar í páfa Erlent Fleiri fréttir Deilt um orðalag á kjörseðli, trúnaðarbrestur og vinsældir ráðherra Fékk uppsagnarbréf og hótar málsókn Miðflokkurinn úr leik í Árborg Krefja Ingu svara við leikskólaáformum Samfylkingarinnar „Við lítum þetta mál mjög alvarlegum augum“ Æsilegri eftirför lauk í Skútuvogi „Þetta er erfiður mánudagur“ Guðmundur Ingi segir sig úr Flokki fólksins Pétur Gautur leggur fram kæru vegna tilhæfulausra ásakana Drengurinn kominn heim til sín Aðstoðarflugmaðurinn gæti talist samábyrgur Gera ekki aðra atlögu Lækka leikskólagjöld til að bregðast við verðbólgu Sjá ekki fyrir endann á ástandinu í fangelsunum Flugstjórinn þögull sem gröfin Lækka gjöld í sveitarfélaginu og fangaverðir segja kerfið komið að þolmörkum Erfiðara að berjast við stjórnvöld en að lifa með náttúruvá „Þetta er ekki það versta sem við höfum lent í“ Fangaverðir segja fangelsiskerfið „algjörlega komið að þolmörkum“ Lundinn sestur upp í Hafnarhólma Ekur niður göngugötu og furðar sig á stæðaleysi Lágflugið vekur athygli erlendis Fimmtíu skjálftar suðvestan við Hestfjall Vonar að skólastarf verði í bænum þrátt fyrir tilmælin Fjögur hundruð mál séu brýnni en þessi „gargandi vitleysa“ „Deilum við Norðmenn um meira en síld og makríl“ Hraða verði endurskoðun á endurgreiðslukerfinu Íranir í mun sterkari stöðu og Trump örvæntingarfullur Vonbrigði með tilmæli og bjórbann í Bláfjöllum Látinn laus ef hann segði til nafns en neitaði Sjá meira