Erlent

Hjálparskip stefna á Gaza ströndina

Óli Tynes skrifar
Gaza ströndin hefur verið nokkuð einangruð síðan Hamas samtökin yfirtóku hana með vopnavaldi.
Gaza ströndin hefur verið nokkuð einangruð síðan Hamas samtökin yfirtóku hana með vopnavaldi.

Átta skip og bátar frá Írlandi, Grikklandi og Tyrklandi stefna nú á Gaza ströndina í Ísrael með hjálpargögn handa Palestínumönnum.

Ísraelar segja að skipunum verði ekki hleypt að ströndinni. Ísraelski flotinn er að búa sig undir að beina þeim til hafnarborgarinnar Ashod.

Þar verður farmurinn væntanlega skoðaður með tilliti til þess hvort leyft verður að skipa honum upp og senda til Gaza.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×