Erlent

Handtökuskipun á fyrrverandi forsætisráðherra

Óli Tynes skrifar
Thaksin Shinawatra fyrrverandi forsætisráðherra Thailands.
Thaksin Shinawatra fyrrverandi forsætisráðherra Thailands.

Dómstóll í Thailandi hefur gefið út handtökuskipun á hendur Thaksin Shinawatra fyrrverandi forsætisráðherra landsins.

Hann er sakaður um hryðjuverk með því að kynda undir og fjármagna tveggja mánaða uppreisn sem kostaði um 100 manns lífið.

Thaksin hefur þegar verið dæmdur í tveggja ára fangelsi fyrir spillingu en hann býr nú í útlegð í Svartfjallalandi.

Forsætisráðherrann fyrrverandi er vellauðugur og átti meðal annars um skeið knattspyrnuklúbbinn Manchester City.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×