Erlent

Jökullinn herjar enn á Bretlandseyjar

Óli Tynes skrifar
Flugvellir eru víða lokaðir á Bretlandseyjum.
Flugvellir eru víða lokaðir á Bretlandseyjum.

Nýtt flugbannsvæði hefur verið sett yfir hluta af Skotlandi, Norður-Írlandi og Írska lýðveldinu.

Meðal flugvalla sem þegar hefur verið lokað eða verður lokað síðar í dag eru vellirnir í Glasgow, Edinborg, Dublin og Belfast.

Samkvæmt núgildandi spá er búist við að öskuskýið færist að Aberdeen, Blackpool, Carlisle, Liverpool og Manchester.

Á þessum tímapunkti hefur þó ekki verið tekin nein ákvörðun um að loka þessum flugvöllum.

Talsmaður breska loftferðaeftirlitsins segir að ólíklegt að breytingar verði á flugvallalokunum á norðanverðum Bretlandseyjum í dag.

Hinsvegar séu þeir nokkuð vissir um að askan fari að berast í vesturátt út á Atlantshaf og að lofthelgin verði hrein á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×