Enski boltinn

Van der Sar framlengir samning sinn við United

Ómar Þorgeirsson skrifar
Edwin van  der Sar.
Edwin van der Sar. Nordic photos/AFP

Manchester United hefur staðfest að markvörðurinn gamalreyndi Edwin van der Sar sé formlega búinn að skrifa undir nýjan samning við félagið sem haldi honum á Old Trafford-leikvanginum fram á sumar árið 2011.

Van der Sar verður því orðinn fertugur þegar samningur hans rennur út en hann hefur litlar áhyggjur af því.

„Mér líður bara vel og skrokkurinn er í fínu standi. Ég nýt þess líka mjög að spila fótbolta fyrir þetta frábæra félag og ég stefni á að bæta fleiri titlum í safnið á þessum tíma," sagði van der Sar í viðtali á opinberri heimasíðu United.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×