Enski boltinn

Gylfi Þór: Sigurinn er það sem mestu máli skiptir

Ómar Þorgeirsson skrifar
Leikmenn Reading fögnuðu dátt í leikslok í gærkvöldi.
Leikmenn Reading fögnuðu dátt í leikslok í gærkvöldi. Nordic photos/AFP

U-21 árs landsliðsmaðurinn Gylfi Þór Sigurðsson hjá Reading ætlar að reynast sínum mönnum drjúgur í FA-bikarkeppninni á Englandi en hann skoraði enn eitt sigurmarkið í gærkvöldi þegar Reading vann 2-3 sigur gegn WBA í framlengdum seinni leik liðanna í 16-liða úrslitum keppninnar.

Gylfi Þór skoraði einnig sigurmark Reading gegn Burnley í 1-0 sigri í 32-liða úrslitum auk þess að skora jöfnunarmarkið sem tryggði framlengingu gegn Liverpool í 64-liða úrslitum.

Gylfi Þór segir í viðtali við opinbera heimasíðu Reading að mark hans gegn WBA hafi verið eitt allra besta mark sem hann hafi skorað á ferlinum en hann skoraði með glæsilegu skoti af 20 metra fjarlægt frá markinu.

„Þetta var klárlega eitt af bestu og mikilvægustu mörkum sem ég hef skorað á ferlinu en sigurinn er það sem mestu máli skiptir. Við fögnum þessum sigri en þurfum svo að fara að einbeita okkur aftur af deildinni og sjá til þess að við náum hagstæðum úrslitum um helgina," seigir Gylfi Þór.

Reading mætir Aston Villa á heimavelli í 8-liða úrslitunum.










Fleiri fréttir

Sjá meira


×