Stjórnsýsla landbúnaðarráðuneytisins allt of veik að mati ESB Heimir Már Pétursson skrifar 25. febrúar 2010 13:16 Styrkja þarf stjórnsýslu landbúnaðarráðuneytisins. Mynd/ Arnþór.
Afnema verður tolla á landbúnaðarafurðum milli Íslands og aðildarríkja Evrópusambandsins gangi Ísland í sambandið og samræma tolla í viðskiptum við ríki utan sambandsins. Þá þarf að styrkja stjórnsýslu landbúnaðarráðuneytisins verulega sem er allt of veik að mati framkvæmdastjórnar Evrópusambandsins. Sjávarútvegur og landbúnaðaur eru tveir stærstu og erfiðustu málaflokkarnir í aðildarviðræðum Íslands við Evrópusambandið. Í skýrslu framkvæmdastjórnarinnar þar sem mælt er með aðildarviðræðum við Ísland og send var leiðtogum sambandsins og Evrópuþinginu í gær, er vakin athygli á afar veikri stöðu landbúnaðarráðuneytisins. Þar vinni einungis 40 manns sem aðallega sjái um stefnumörkun. Stjórnsýslunni hafi hins vegar meira og minn verið komið í hendur hagsmunasamtaka eins og Bændasamtakanna og ýmissra stofnanna. Styrkja verði landbúnaðarráðuneytið og koma á stofn stjórnsýslueiningu sem sjái um að framfylgja landbúnaðarstefnu Evrópusambandsins, styrkjakerfi þess og byggðastefnu. En í skýrslunni er einnig bent á að á Íslandi sé ómarkviss byggðastefna sem að auki sé ekki í samræmi við byggðastefnu Evrópusambandsins. Þótt þessi málaflokkur sé mikilvægur, er í skýrslunni bent á að lándbúnaður standi aðeins undir 1,4 prósentum af landsframleiðslunni og 2,5 prósent vinnuaflsins starfi í landbúnaði. Þá búi 6.5 prósent þjóðarinnar í sveitum landsins. Einnig er bent á að 65 prósent af innfluttum landbúnaðarvörum á Íslandi komi frá Evrópusambandinu og 47 prósent af útfluttum landbúnaðarafurðum héðan fari til Evrópusambandsins. Hagsmunir Íslands og sambandsins eru því nátengdir. Tollar yrðu aflagðir með aðild, þannig að verð á innfluttum landbúnaðarafurðum myndi lækka töluvert hér á landi. Sömuleiðis myndi verð á íslenskum landbúnaðarafurðum lækka í sambandsríkjunum og þar með yrðu þær samkeppnishæfari þar. Með aðilid Íslands yrði landið hluti af víðtæku styrkjakerfi Evrópusambandsins. Í skýrslunni er bent á að landið liggi norðan 62. breiddargráðu, hér sé lítið ræktarland og aðstæður til landbúnaðar um margt erfiðar. Hins vegar sé söfnun tölfræðilegra upplýsinga í landbúnaði hér ábótavant og bragarbót verði að gera á henni.
Mest lesið Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Innlent Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Innlent Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Innlent Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Innlent Segir vopnahlé í höfn Erlent Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Innlent Fleiri handteknir í Borgarnesi Innlent Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Innlent Flaug í einkaflugi með Støre Innlent Trump þakkar Írönum fyrir að láta vita af sér Erlent Fleiri fréttir Sé tilraun til að þagga niður í gagnrýni Fjögur búsetuúrræði Vinnumálastofnunar standa auð Ísraelar samþykkja vopnahlé Trumps Æf vegna ummæla Kristrúnar um falsfréttir: „Þessi skammarlegu, ómaklegu ummæli“ Engar stórvirkjanir í Skagafirði en opið að fara í Kjalölduveitu Ísland muni ekki verja fimm prósentum til varnarmála Mikill reykur eftir að kviknaði í annarri efnalaug „Við erum auðvitað ekki komin þangað“ Telja einhvern hér á landi búa yfir vitneskju um hvað kom fyrir Jón Þröst Fleiri handteknir í Borgarnesi Átök breiðast út í Mið-Austurlöndum, virkjanaáform og brúðkaup Bezos Gert að greiða fyrrverandi manni sínum bætur vegna dreifingar á nektarmynd Sextán ár fyrir að bana dóttur sinni Leita fulltingis forseta til að fá upplýsingar um veiðigjöld Lúsmý um allt land en bitmýið einnig árásargjarnt Kona féll í Svöðufoss „Það gengur ekki að þingið sé tekið í gíslingu“ „Landslið barna“ tekið til starfa á Suðurnesjum Grunar að fjárheimildir ætlaðar þjónustu hafi farið í launakostnað „Annars værum við ekki að leggja í þessar miklu aðgerðir“ Flaug í einkaflugi með Støre Réðst á einstakling á sjötugsaldri með hníf Lætur reyna á hvort samræði við þrettán ára sé nauðgun Biðla til foreldra: Barn einungis þrjátíu sekúndur að drukkna Árásum á Íran haldið áfram og enn þráttað um veiðigjöld Neita öll sök í Gufunessmálinu Váleg þróun að ríki telji sig ekki þurfa að færa rök fyrir því að beita hervaldi Hyggst setja RÚV „talsverðar skorður“ í þágu einkarekinna fjölmiðla Handtekinn fyrir að sveifla hamri Sjálfboðaliðar að bugast: Mikil örvænting meðal gæludýraeigenda Sjá meira