Innlent

Þúsund manns í jarðaför ferðafrelsis Íslendinga

Fimm metra hár kross var reistur í Kistuöldu rétt fyrir neðan Vonarskarð í dag þar sem fjöldi fólks var mættur vilð jarðarför ferðafrelsis Íslendinga. Það voru útivistarfélög víða af landinu sem stóðu fyrir uppákomunni en með henni var verið að mótmæla áformum um að loka fjölda leiða fyrir umferð í Vatnajökulsþjóðgarði.

Meðal annars á að banna umferð um Vonarskarð sem margir telja eina mestu náttúruperlu landsins. Um þúsund manns mættu í jarðarförina og var krossinn skilinn eftir.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×