Blair: Brown var óþolandi 1. september 2010 10:19 Tony Blair. MYND/Getty
Ævisaga Tony Blair fyrrverandi forsætisráðherra Breta kemur út í dag og í henni vandar hann eftirmanni sínum í Downing stræti ekki kveðjurnar. Í bókinni lítur Blair yfir farinn veg og segir meðal annars að Gordon Brown, sem var lengi fjármálaráðherra í ráðuneyti Blairs og síðan eftirmaður hans í sæti forsætisráðherra, hafi verið algjörlega óþolandi á köflum. Hann hafi því verið sannfærður um að Brown yrði hræðilegur forsætisráðherra, eins og margir vilja meina að hafi nú verið raunin, ekki síst margir Íslendingar. Blair segir að þrátt fyrir galla sína hafi Brown þó einnig sýnt styrk, hæfni og snilldartakta, og að hann hafi ávallt dáðst að þeim persónuleikaeinkennum í fari Browns. Þá lýkur hann palladómi sínum um Brown með því að segja að þegar hann líti til baka yfir feril Browns í embætti sé auðvelt að segja að hann hefði átt að koma í veg fyrir að Brown fengi stólinn. Í ævisögunni, sem heitir A Journey, eða Ferðalag, greinir Blair líka frá því að hann hafi ánetjast áfengi þegar hann gegndi þessu valdamesta embætti Bretlandseyja. Þegar viðkemur stríðinu í Írak segist Blair afskaplega hryggur yfir þeim sem fórust í stríðinu en fullyrðir þó að það hefði verið mun áhættusamara að leyfa Saddam Hussein forseta landsins að halda áfram um stjórnartaumana. Því sér hann alls ekki eftir þeirri ákvörðun að fara út í stríðið.
Mest lesið Skotárás á Times Square Erlent Alelda bíll á Emstruleið Innlent Rannsaka ásakanir á hendur ríkissáttasemjara Innlent Lést eftir skyndileg veikindi við klettastökk Innlent Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Erlent Gefur ekkert landsvæði eftir Erlent Segjast ekkert hafa vitað um hætturnar í Reynisfjöru Innlent Samdráttur og vítahringur í boði stjórnvalda Innlent Amma ræsti neyðarhnapp við enn eina árás dóttur sinnar Innlent Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Erlent Fleiri fréttir „Úkraínumenn þurfa örugglega að gefa eftir land“ Skotárás á Times Square Nyrsta olíuvinnslusvæði Noregs formlega opnað Eldur kviknaði í sögufrægri dómkirkju Gefur ekkert landsvæði eftir Aserar og Armenar skrefi nær friði eftir sögulegan fund í Hvíta húsinu Geimfari Apollo 13 látinn Trump og Pútín funda í Alaska næsta föstudag Rekinn eftir tvo mánuði hjá skattinum og samdægurs tilnefndur sendiherra á Íslandi Ákvörðun öryggisráðsins til marks um enn frekari stigmögnun Skipar hernum í hart við glæpasamtök Stefni á tilraun með kjarnorkuknúna eldflaug á norðurslóðum Fann hagtölur sem honum líkar og hélt óvæntan blaðamannafund Skýrasta myndin af halastjörnunni, eða vopninu, hingað til Sakaði „sveppamorðingjann“ um að hafa eitrað fyrir sér í þrígang Rússar enn að fá „samstöðustyrki“ en Úkraínumenn ekki Sektaður fyrir að aka á 321 kílómetra hraða Keppa við Kínverja og Rússa um að koma kjarnakljúfi til tunglsins Öryggisráðið ákveður að taka yfir Gasa-borg Mun funda með Pútín þó fundur með Selenskí sé hvergi í sjónmáli Flokkurinn fyrir sjálfstætt Austur-Grænland: „Flug til Íslands allt árið!“ Demókratar setja sig í stellingar fyrir forsetaframboð Neitar að hitta Pútín án Selenskís Grönduðu flugvél frá furstadæmunum og felldu fjörutíu málaliða Geislasverð Svarthöfða til sölu Liðþjálfi skaut fimm aðra hermenn Fúlsaði við þriggja forseta fundi Segja enn og aftur brotið gegn Folbigg Gefa grænt ljós á lengstu hengibrú í heimi „Fordæmalausar hörmungar“ í Frakklandi Sjá meira