Enski boltinn

Nemanja Vidic segir að enska deildin hafi aldrei verið sterkari

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Nemanja Vidic, serbneski miðvörðurinn hjá Manchester United.
Nemanja Vidic, serbneski miðvörðurinn hjá Manchester United. Mynd/AFP
Nemanja Vidic, serbneski miðvörðurinn hjá Manchester United, segir að enska úrvalsdeildin sé í fínu formi og að þar hjálpi til að lið eins og Aston Villa eru farin að blanda sér í toppbaráttuna.

„Það eru sex lið í ensku deildinni sem líta öll vel út og geta öll tekið stig af hverju öðru. Það er sönnun þess hversu sterk enska úrvalsdeildin er orðin," sagði Nemanja Vidic við heimasíðu United.

Vidic er ósammála þeim sem vilja gera lítið úr enska deildarbikarnum sem Manchester United vann annað árið í röð um síðustu helgi.

„Það er mikið afrek að vinna enska deildarbikarinn. Það hafa sum félög gefið lítið fyrir þennan bikar en það sást á byrjunarliðinu okkar á sunnudaginn að það var enginn vafi á því að við vildum vinna þennan bikar," sagði Nemanja Vidic.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×