Enski boltinn

City skaust í fjórða sætið eftir jafntefli gegn Stoke

Ómar Þorgeirsson skrifar
Leikmenn Stoke.
Leikmenn Stoke. Nordic photos/AFP

Einn leikur fór fram í ensku úrvalsdeildinni í kvöld þar sem Stoke og Manchester City gerði 1-1 jafntefli á Britannia-leivanginum.

Abdoulaye Faye fékk að líta rautt spjald hjá Stoke á 53. mínútu en það kom ekki í veg fyrir að Glenn Whelan kæmi heimamönnum yfir með marki á 72. mínútu.

Gareth Barry náði hins vegar að bjarga stiginu fyrir City með marki fimm mínútum fyrir leikslok en City skaust upp í fjórða sæti með jafnteflinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×