Fundi stjórnar og stjórnarandstöðu lokið um Icesave - málum miðar vel 6. febrúar 2010 13:27 Frá einum af fundum stjórnar og stjórnarandstöðu. Mynd úr safni.
Ríkisstjórn og stjórnarandstöðuflokkar kláruðu fund sín á milli í Fjármálaráðuneytinu nú fyrir stundu varðandi Icesave. Utanríkisráðherrann Össur Skarphéðinsson sat fundinn fyrir hönd Samfylkingarinnar, en Jóhanna Sigurðardóttir er í fríi erlendis eins og Vísir hefur greint frá. Þá sat Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, fundinn fyrir Vinstri græna. Fréttablaðið sagði frá því í morgun að flest bendi til betri lausnar í Icesave-málinu og var þá nefnt sérstaklega að Bretar og Hollendingar séu tilbúnir að semja upp á nýtt um afborganir og vexti. Steingrímur sagði í viðtali við Vísi í morgun að frétt Fréttablaðsins væri um óorðinn hlut og of snemmt að segja nokkuð til um það. Engar samningaviðræður hafa verið á milli landanna. Þegar haft var samband við Birgittu Jónsdóttur, þingmann Hreyfingarinnar, sagði hún að stjórn og stjórnarandstaða væru að finna flöt til þess að vinna út frá. Hún vildi lítið tjá sig um það sem gerðist á fundinum. Aðspurð hvort óhætt væri að fullyrða að viðræður væru að þokast áfram á milli flokkanna sagði hún svo vera. Hún tók hinsvegar sérstaklega fram að ekki væri búið að kvitta undir neina fullkomna samstöðu á milli meirihlutans og minnihluta. Steingrímur J. Sigfússon sagði fundinn hafa gengið vel. Menn hefðu verið að fara yfir stöðuna og þetta hefði áfram verið í jákvæðum farvegi. Hann sagði málin vera að þróast og að unnið verði í málinu áfram. Aðspurður um aðkomu erlendra ráðgjafa svaraði Steingrímur: „Við verðum að stíga varlega til jarðar í þessu öllu saman þar sem við séum ekki ein í ráðum." Steingrímur sagðist lítið annað geta sagt en að málum miði vel. Samkvæmt heimildum Vísis má búast við að málin skýrist um helgina.
Tengdar fréttir Steingrímur J: Betri Icesave-lausn eru fréttir um óorðinn hlut „Þetta eru fyrirfram fréttir um óorðinn hlut,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, spurður út í forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag þar sem segir að flest bendi til mun betri lausnar í Icesave málinu. 6. febrúar 2010 10:45 Flest bendir til mun betri Icesave-lausnar Grundvöllur að nýjum samningaviðræðum um Icesave er í sjónmáli. Bjartsýni og jákvæðni gætir á öllum vígstöðvum. Samræður stjórnar og stjórnarandstöðu á Íslandi síðustu daga hafa gengið vel og fært menn nær hvorum öðrum. Góður tónn var í breskum og hollenskum ráðherrum á fundi með þremur flokksformönnum í Haag fyrir rúmri viku. 6. febrúar 2010 07:00 Jóhanna farin í frí - fór til útlanda í morgun Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er farin í frí. Ekki er gert ráð fyrir ríkisstjórnarfundi á þriðjudaginn vegna svokallaðrar kjördæmaviku. Hinsvegar er gert ráð fyrir að forsætisráðherra sitji ríkisstjórnarfund á föstudaginn samkvæmt upplýsingum frá Einari Karli Haraldssyni upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins. 6. febrúar 2010 13:04 Mest lesið Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent „Lygaáróðursherferð af hálfu pólitískra andstæðinga“ Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Allir Bretar fæddir eftir 2008 í lífstíðarbann frá tóbaki Erlent Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Innlent „Blóðmassinn svartur sem hel“ Innlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira
Steingrímur J: Betri Icesave-lausn eru fréttir um óorðinn hlut „Þetta eru fyrirfram fréttir um óorðinn hlut,“ segir Steingrímur J. Sigfússon, fjármálaráðherra, spurður út í forsíðufrétt Fréttablaðsins í dag þar sem segir að flest bendi til mun betri lausnar í Icesave málinu. 6. febrúar 2010 10:45
Flest bendir til mun betri Icesave-lausnar Grundvöllur að nýjum samningaviðræðum um Icesave er í sjónmáli. Bjartsýni og jákvæðni gætir á öllum vígstöðvum. Samræður stjórnar og stjórnarandstöðu á Íslandi síðustu daga hafa gengið vel og fært menn nær hvorum öðrum. Góður tónn var í breskum og hollenskum ráðherrum á fundi með þremur flokksformönnum í Haag fyrir rúmri viku. 6. febrúar 2010 07:00
Jóhanna farin í frí - fór til útlanda í morgun Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra er farin í frí. Ekki er gert ráð fyrir ríkisstjórnarfundi á þriðjudaginn vegna svokallaðrar kjördæmaviku. Hinsvegar er gert ráð fyrir að forsætisráðherra sitji ríkisstjórnarfund á föstudaginn samkvæmt upplýsingum frá Einari Karli Haraldssyni upplýsingafulltrúa forsætisráðuneytisins. 6. febrúar 2010 13:04