Flest bendir til mun betri Icesave-lausnar 6. febrúar 2010 07:00
Grundvöllur að nýjum samningaviðræðum um Icesave er í sjónmáli. Bjartsýni og jákvæðni gætir á öllum vígstöðvum. Samræður stjórnar og stjórnarandstöðu á Íslandi síðustu daga hafa gengið vel og fært menn nær hvorum öðrum. Góður tónn var í breskum og hollenskum ráðherrum á fundi með þremur flokksformönnum í Haag fyrir rúmri viku. Samkvæmt heimildum Fréttablaðsins leggja Bretar og Hollendingar höfuðáherslu á að fá höfuðstól Icesave-skuldarinnar greiddan. Nemur hann tæpum 700 milljörðum króna. Lýstu þeir sig reiðubúna til viðræðna um hvaðeina annað, svosem afborgunartíma og vexti. Á móti kemur að þeir vilja ekki að málið verði sett í dóm. Er horft til þess að vextir verði breytilegir, en ekki fastir eins og bundið var í fyrri samninga. Eftir því sem Fréttablaðið kemst næst miðar nú vinnan á Íslandi ekki síst að því að leita allra leiða til að hámarka eignir þrotabús Landsbankans. Erlendir sérfræðingar hafa verið fengnir til ráðgjafar. Nýjustu spár gera ráð fyrir að eigurnar kunni að duga fyrir rúmlega níutíu prósentum Icesave-skuldanna. Vongóðir segja mögulegt að eigurnar standi undir öllum kostnaðinum. Niðurstaðan kemur ekki í ljós fyrr en að nokkrum árum liðnum þar sem þrotameðferð tekur jafnan talsverðan tíma. Það er Bretum og Hollendingum nokkuð kappsmál að málinu verði lokið sem fyrst. Íslenskir stjórnmálamenn eru sömu skoðunar. Hérlendis óttast menn raunar að snurða kunni að hlaupa á þráðinn ef málið tefst úr hófi fram. Þokist sjáanleg lausn of nærri fyrirhugaðri þjóðaratkvæðagreiðslu um Icesave-lögin frá því í desemberlok geti spillst fyrir nýfengnu ágætu samstarfi formanna flokkanna. Þeir þurfi að beita sér í kosningabaráttu. - bþs
Mest lesið Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Innlent Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Innlent Valdimar Örnólfsson er látinn Innlent Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Innlent Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Innlent Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Innlent Berserksgangur á gististað Innlent Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Innlent Segir vopnahlé framlengt um þrjár vikur Erlent Með lista yfir góða og slæma bandamenn Erlent Fleiri fréttir Hákon Þór hvarf sporlaust í Búdapest Sigrún Helga nýr forseti Röskvu Reykur yfir Keflavíkurflugvelli reyndist vera æfing Berserksgangur á gististað Farþegar sjá ekki fólkið sem gegnumlýsir farangurinn Vekur spurningar um hugsanlega meðferð við heilabilun Valdimar Örnólfsson er látinn Nýr sæstrengur frá Skotlandi í bígerð Sjávarútvegsstjórinn segir ESB opið fyrir undanþágum Deiluefni jafnað við jörðu í Kópavogi Reiði yfir pítsupartíi: Auglýst á fundi án samráðs Ný nefnd hefur náðað þrjá Fresta leit að ferðamanninum Vilja ræða um varnargarða en byggja meira á hraunum Krefjast þess að stjórnvöld standi ekki í vegi endurreisnar Lítilli flugvél hvolfdi við lendingu Síðustu skósmiðirnir og Ungfrú Ísland í beinni Hækka launin um 3,5 prósent í stað 9,7 prósenta Átti að fá smáaura en fékk fimm og hálft ár Aukin hætta á gróðureldum Leita enn að ferðamanninum Bein útsending: Íbúafundur í Grindavíkurbæ Framkvæmdastjóri Fjölmiðlanefndar lagði ríkið endanlega Einn fluttur á slysadeild eftir árekstur „Ég fer í Costco að ná mér í bita“ Sýknaður af ákæru fyrir ítrekaðan harmonikkuleik Sjö sóttu um embætti sýslumanns Íslands Með rúma eina og hálfa milljón í heildarlaun Leggur til lagabreytingar vegna smæðar þjóðarinnar Framkvæmdastjóri Félagsbústaða lætur af störfum Sjá meira