Erlent

Stefnuræða í Lundúnum lokar á valdaafsal til Brussel

Óli Tynes skrifar
Elísabet Englandsdrottning flutti stefnuræðu ríkisstjórnarinnar.
Elísabet Englandsdrottning flutti stefnuræðu ríkisstjórnarinnar.

Venju samkvæmt var það Elísabet drottning sem flutti stefnuræðu hinnar nýju ríkisstjórnar Bretlands. Fyrstu samsteypustjórninni sem þar hefur setið í sjötíu ár.

Í ræðunni sagði drottningin að ríkisstjórn hennar myndi leggja höfuðáherslu á að minnka fjárlagahallann og koma aftur á hagvexti.

Talsverða athygli vakti að ríkisstjórnin ætlar að takmarka fjölda innflytjenda frá löndum Evrópusambandsins.

Eftir er að sjá hvort þetta verður túlkað þannig að það sé í andstöðu við stefnu ESB um frjálst flæði vinnuafls.

En Evrópusambandið fékk fleiri skot. Í ræðunni sagði að hverskonar valdaafsal til Brussels yrði í framtíðinni borið undir þjóðaratkvæði.

Með þessu er í raun verið að taka fyrir slíkt afsal þar sem vilji þjóðarinnar í þeim efnum er alveg ljós.

Það á líka að bera undir atkvæði hvort þjóðin vill gera breytingar á kosningafyrirkomulaginu.

Nick Clegg leiðtogi Frjálslyndra demókrata lagði höfuðáherslu á slíkar breytingar í samningaviðræðum við Íhaldsflokk Davids Camerons um samsteypustjórn.

Þá á einnig að setja lög sem gera kjósendum í einstökum kjördæmum kleift að krefjast aukakosninga ef þingmaður viðkomandi kjördæmis gerir sig sekan um alvarleg brot.

Því var heitið að hefja einkavæðingu hinnar konunglegu póstþjónustu og breyta almannaþjónustu til hins betra. Sem og menntakerfinu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×