Enski boltinn

Enska úrvalsdeildin: Gerrard og Torres afgreiddu Blackburn

Ómar Þorgeirsson skrifar
Steven Gerrard og Fernando Torres.
Steven Gerrard og Fernando Torres. Nordic photos/AFP

Liverpool styrkti stöðu sína í baráttunni um Meistarardeildarsæti með 2-1 sigri gegn Blackburn á Anfield-leikvanginum í ensku úrvalsdeildinni í dag en Sunderland og Fulham gerðu markalaust jafntefli á leikvangi Ljóssins.

Fyrirliðinn Steven Gerrard kom Liverpool yfir þegar fyrri hálfleikurinn var tæplega hálfnaður með glæsilegu marki eftir góðan samleik við Yossi Benayoun en Keith Andrews jafnaði leikinn fyrir Blacburn með marki úr vítaspyrnu þegar fimm mínútur voru eftir af fyrri hálfleiknum.

Liverpool svaraði hins vegar að bragði með marki Fernando Torres eftir sendingu frá Maxi Rodriguez og reyndist það vera sigurmark leiksins.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×