Erlent

Þrír farþegar slösuðust í ókyrrð yfir Atlantshafi

Þotu frá United Airlines lenti í svo mikilli ókyrrð á Atlantshafi að þrír um borð slösuðust. Vélin var á leið frá London til Los Angeles og þurfti að lenda henni í Ottawa í Kanada til þess að koma hinum slösuðu undi læknishendur. Þeir sem slösuðust, einn úr áhöfn og tveir farþegar, brotnuðu meðal annars á fótum og á ökla. Vélin verður kyrrsett í Kanada og leitað að skemmdum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×