Innlent

Eva Joly er hætt

Eva Joly er hætt störfum fyrir sérstakann saksóknara. Hún hefur gert starfslokasamning við embættið.

Þetta kom fram á blaðamannafundi sem Eva Joly og Ólafur Þ. Hauksson héldu í dag. Upphaflega átti samningur um aðstoð Evu Joly að gilda út þetta ár. Hún hyggur á forsetaframboð í Frakklandi og hefur því gert starfslokasamninginn.

Ólafur Þ. Hauksson segir að samstarfið við Evu Joly hafi verið gott og árangursríkt.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×