Willum Þór: Við tókum ekki þátt í þessum leik Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 7. júní 2010 22:02 Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur. Mynd/Stefán
Willum Þór Þórsson, þjálfari Keflavíkur, var myrkur í máli eftir 4-0 tap liðsins á móti Stjörnunni í Garðabænum í kvöld. „Allir sem voru hér sáu það að við mættum ekki til leiks. Þeir keyrðu bara yfir okkur nánast frá byrjun. Tryggvi keyrði inn í markvörðinn okkar, svo taka þeir eina duglega tæklingu til viðbótar og við gugnuðum og gáfum eftir. Þeir áttu greiða leið í gegnum miðjuna okkar og komu á flata vörnina og sprengdu okkur bara í fyrri hálfleik," sagði Willum. „Við vorum ekki með lungann úr leiknum. Fyrri hálfleikurinn fór með leikinn. Þetta var ögn skárra í seinni enn ekkert til að hrópa húrra fyrir heldur. Þetta er bara einn leikur og við tókum ekki þátt í honum," sagði Willum. Keflavíkurvörnin réð ekkert við Steinþór Frey Þorsteinsson í þessum leik og hann skapaði hættu í nánast hverri sókn, annaðhvort með því að keyra á vörnina enda henda innköstunum inn að markteignum. „Við vissum að Steinþór myndi sækja boltann, setja undir sig hausinn og leggja af stað. Við ætluðum að beina honum í þverhlaupin en það tókst ekki. Svo bara dettur hann alltaf þegar kemur maður nálægt og Kiddi flautaði í öll skiptin," sagði Willum „Liðið verst í heild sinni, við unnum boltann illa á miðsvæðinu og héldum honum ekki frammi. Þeir áttu greiða leið í gegnum miðjuna, keyrðu á flata vörnina og þá var pláss á bak við sem þeir stungu sér í gegnum. Við vorum bara í vandræðum allan fyrri hálfleikinn en tókst þó aðeins að lagfæra þetta í seinni," sagði Willum að lokum.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Orri stöðvaður með bikarinn í öryggishliðinu Fótbolti „Ég er bara í skýjunum með að hafa unnið hann“ Sport „Takk fyrir mig Keflavík, þetta var æðisleg sería“ Sport Hótelstjórarnir örvænta og lækka verðið á hótelgistingu á HM Fótbolti Lyon gerði það sem Liverpool tókst ekki á móti PSG Fótbolti Liðsfélagi Glódísar Perlu ráðin í starf hjá karlaliði Bayern Fótbolti Ísland fékk sínu ekki framgengt: Rússar mega sigla undir hlutlausum fána Sport Haaland hetja City og apríl verður enn verri fyrir Arsenal Enski boltinn Elísabet stórbætti Íslandsmetið og Júlía hljóp annað met Guðrúnar uppi Sport „Ég er hrikalega stoltur af honum“ Fótbolti Fleiri fréttir Stúkan: Skagamenn voru rændir af dómaranum Sjáðu öll mörkin: Veisla í Vesturbænum, tvenna hjá Vuk og Gylfi í skotskónum Hunsaður frá byrjun: „Þetta var bara frekar leiðinlegt og fúlt“ Uppgjörið: Stjarnan - FH 3-2 | Andri Rúnar reyndist Stjörnunni gulls ígildi „Erum á réttri leið“ KR - Þór Ak. 5-2 | Veisla í Vesturbæ Ekki mörg lið í Skandinavíu ráði við KR í þessum gír „Verðum að laga þetta ef við ætlum að láta taka okkur alvarlega“ Uppgjörið: Breiðablik-ÍA 1-0 | Blikar stóðust stórsókn Skagamanna Uppgjörið: Fram-Keflavík 3-1: Vuk Oskar kom, sá og sigraði í sigri Framara Uppgjör: KA-Víkingur 0-2 | Gylfi áfram á skotskónum og Víkingar unnu fyrir norðan „Klárlega léttir þetta pressu“ Uppgjör: Valur-ÍBV 2-1 | Hólmar tryggði Val fyrsta sigur sumarsins Alexander Helgi frá KR í Njarðvík Stuðningsmenn kosta Þór og Víking hundruð þúsunda Gabríel Snær seldur til Svíþjóðar Launin ekki aðalatriði og bónus að hafa fjölskylduna nálægt „Ég get ekki breytt þessu“ Oliver keyptur til KA „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik Sjá meira