Grant gripinn glóðvolgur á „nuddstofu“ Ómar Þorgeirsson skrifar 4. febrúar 2010 15:15 Avram Grant. Nordic photos/AFP
Knattspyrnustjórinn Avram Grant hjá Portsmouth hefur staðið í ströngu, bæði innan vallar sem utan, síðan hann var ráðinn til félagsins. Portsmouth situr sem fastast á botni deildarinnar og fjárhagsvandræði félagsins virðast engan endi ætla að taka. Grant hefur harðlega gagnrýnt forráðamenn félagsins fyrir svikin loforð en Grant sá aftur á móti sjálfur um að grípa fyrirsagnirnar í breskum fjölmiðlum í dag. Slúðurblaðið The Sun nafngreindi knattspyrnustjórann í tengslum við nuddstofu í Southampton á Englandi sem blaðið fullyrðir að sé ekkert annað en vændishús. The Sun birti fyrst fréttir í desember af heimsókn ónefnds knattspyrnustjóra í ensku úrvalsdeildinni þangað en ákvað þá að nafngreina hann ekki. Í kjölfarið á því að slúðurblaðið News of the World vann kærumál sem John Terry höfðaði á hendur blaðinu þá ákvað The Sun að ganga alla leið og greina frá því að umræddur knattspyrnustjóri hafi í raun verið Grant. Lögreglan í Southampton mun vera að rannsaka starfsemi „nuddstofunnar" og gæti því þurft að yfirheyra Grant vegna málsins en ljóst þykir að hann hafi nú þegar í nógu að snúast við að reyna að hjálpa Portsmouth að rétta úr kútnum.
Mest lesið Hótar að stöðva byggingu nýs vallar ef liðið skiptir ekki um nafn Sport Óskiljanlegur miði Vestra vekur athygli Fótbolti Fékk útrás fyrir keppnisskapið við heimilisstörfin Íslenski boltinn Gascoigne fannst meðvitundarlaus og fluttur á spítala Fótbolti Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Enski boltinn Sjáðu rauða spjaldið og markið sem skaut Valsmönnum á toppinn Fótbolti Viss um að Arsenal hafi gert rétt í máli Partey Fótbolti Liverpool samþykkir að greiða þrettán milljarða fyrir Ekitike Fótbolti Rashford mættur til Barcelona Fótbolti Segir árásum fjölga eftir því sem kvennaboltinn stækkar Fótbolti Fleiri fréttir Amorim og Guardiola vilja fyrrum lærisvein þess fyrrnefnda Mbeumo staðfestur hjá félagi drauma sinna Nýi Liverpool maðurinn í fámennum hópi með Mo Salah Will Ferrell stal athyglinni frá daufum leik Man.United í gær Liverpool kaupir Ekitike fyrir meira en níutíu milljónir evra Rannsaka Íslendingafélagið Burton Albion Rashford nálgast Barcelona Hvar mun Mbeumo spila fyrir Man United? Hrókeringar í markmannsmálum Man City Ince missir prófið og þarf að borga yfir milljón í sekt Madueke skrifar undir hjá Arsenal Hittust á Íslandi og keyptu Mbeumo Stuðningsmenn Manchester United oftast handteknir Snoop Dogg orðinn einn af eigendum Swansea City Liverpool langt komið með að kaupa Ekitike Eigendur Burnley eignast hitt liðið í Barcelona Liverpool reynir líka við Ekitike Steven Gerrard orðinn afi Liverpool tilbúið að slá metið aftur Íslandsvinirnir í Puma borga Manchester City 165 milljarða Kaupa ekki Ekitike vegna þess að þeir ætli að selja Isak til Liverpool Fyrrum leikmaður Manchester United lögsækir félagið Númerin í enska boltanum sem enginn má spila í Umboðsmenn Gyökeres lentir í London og hann sagður á leið í Arsenal Liverpool heiðraði minningu Jota og vann sigur Mínútu þögn fyrir fyrsta leik Liverpool síðan Jota féll frá Grealish líkast til á förum en elskar samt City „meira en allt“ Rio Ferdinand húðskammar Arsenal stuðningsmenn Fjarvera Gyökeres gera félagaskiptin hans „flóknari“ Onana frá næstu vikurnar Sjá meira