Innlent

Lét dólgslega með hníf

Sjö líkamsárásir voru tilkynntar til lögreglunnar um helgina. Fjórar þeirra áttu sér stað í miðborginni aðfaranætur laugardags og sunnudags en þær voru allar minniháttar.

Tvítugur piltur kom við sögu í tveimur þeirra en sá var mjög ósáttur þegar honum var meinaður aðgangur á skemmtistað og lét þá kauði hendur skipta. Á öðrum stað á höfuðborgarsvæðinu handtók lögreglan karl um fimmtugt en sá var vopnaður hnífi og lét dólgslega.

Maðurinn var ölvaður og mundi lítt eða ekkert eftir atburðum þegar af honum var runnið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×