Nicklas Bendtner tryggði Arsenal sigur í uppbótartíma Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 13. mars 2010 19:18 Nicklas Bendtner. Mynd/Getty Images
Daninn Nicklas Bendtner er svo sannarlega hetja Arsenal-manna þessa dagana því hann fylgdi á eftir þrennunni á móti Porto í Meistaradeildinni í vikunni með því að skora sigurmark Arsenal í 2-1 útisigri á Hull í ensku úrvalsdeildinni í kvöld. Nicklas Bendtner skoraði sigurmarkið á annarri mínútu í uppbótartíma þegar hann fylgdi á eftir skoti Denilson sem Boaz Myhill, markvörður Hull, varði út í teiginn. Það virtist þó lengi ekki ætla að ganga hjá Arsenal að tryggja sér sigurinn þrátt fyrir að leika manni fleiri síðustu 45 mínútur leiksins. Andrei Arshavin kom Arsenal í 1-0 á 13 mínútu eftir einleik í gegnum vörnina og það leit ekki út fyrir annað en að gestirnir myndu vinna öruggan sigur en annað kom þó á daginn. Hull jafnaði nefnilega leikinn úr vítaspyrnu fimmtán mínútum síðar. Vítið fiskaði Jan Vennegoor of Hesselink en hann var þó greinilega rangstæður þegar hann fékk boltann áður en Sol Campbell braut á honum. Jimmy Bullard skoraði af öryggi úr vítinu. George Boateng, fyrirliði Hull, fékk tvö gul spjöld á síðustu fimm mínútum fyrri hálfleik og Hull-liðið var því manni færri allan seinni hálfleikinn. Hull-liðið barðist vel og hélt aftur af Arsenal-sókninni allt þar til á 92. mínútu þegar Daninn var á réttum stað og skoraði þetta mikilvæga mark sem kemur Arsenal-liðinu upp að hlið Chelsea á toppnum.
Mest lesið Aníta Ýr slær í gegn í Yale háskólanum Fótbolti Spilað ofan í úrslitaleik kvenna: „Ha?! Ég þurfti að athuga þetta tvisvar“ Íslenski boltinn Sjáðu mörk Haalands, asnaskap Mbappé og sjálfsmörkin í Þýskalandi Fótbolti Hné niður og var fluttur á sjúkrahús Fótbolti Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Enski boltinn Ósammála Einari sem lét gamminn geisa í gær Íslenski boltinn Mikael beittur kynþáttaníði Fótbolti Laskaður á líkama og sál eftir þungt högg Formúla 1 Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Enski boltinn Vitna í bíl sem Bin Laden styrkti Formúla 1 Fleiri fréttir Átti ekki að dæma víti á Liverpool en ekki heldur að líta á skjáinn Fyrrverandi leikmaður Liverpool leitar liðs á LinkedIn Segir að Haaland muni verða besti markaskorari allra tíma Hull tapaði úrvalsdeildarslag í deildarbikarnum Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Sjá meira