Tyrkneska þingið dregur úr völdum dómara 8. maí 2010 05:00 -
AP- Tyrkneska þingið samþykkti í gær stjórnarskrárbreytingar sem gagnrýnendur segja til þess ætlaðar að styrkja völd ríkisstjórnarinnar á kostnað dómsvaldsins. Stjórnin fékk þó ekki nægilega mikið fylgi við breytingarnar til þess að þær taki gildi fyrr en þær hafa verið bornar undir þjóðina. Líklega mun því forseti landsins efna til þjóðaratkvæðagreiðslu um nýja fyrirkomulagið í sumar. Dómsvaldið hefur frá stofnun tyrkneska lýðveldisins árið 1923 látið veraldleg sjónarmið vera ráðandi, en núverandi stjórn, sem komst til valda árið 2003, er hins vegar byggð á íslömskum grunni. Stjórnin segir hins vegar breytingunum ætlað að styrkja lýðræðið í landinu, efla rétt kvenna og barna og tryggja persónuvernd. Stjórnin hefur áður takmarkað völd hersins, sem styður ákaft hina veraldlegu undirstöðu ríkivaldsins og hefur fjórum sinnum bylt ríkisstjórnum síðan 1960. Breytingarnar fela meðal annars í sér að hægt sé að draga herforingja fyrir borgaralega dómstóla frekar en herdómstóla. Líklegt þykir að stjórnarskrárbreytingarnar verði samþykktar í þjóðaratkvæðagreiðslu, því Recep Tayyip Erdogan forsætisráðherra nýtur mikils fylgis meðal landsmanna.- gb
Mest lesið Munaði litlu að nýliði skákaði borgarstjóra Innlent „Fyrst og fremst er verið að hafna oddvitanum“ Innlent Icelandair aflýsir flugferðum Innlent Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Erlent Maðurinn er fundinn Innlent Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Erlent Gripnir á 165 á áttatíu götu og á 157 á sextíu götu Innlent Fyrrverandi yngsti þingmaður sögunnar skiptir um flokk og fer fram Innlent Kerfið hafi brugðist Innlent „Örstutt þunglyndi yfir niðurstöðunum“ Innlent Fleiri fréttir Skotinn til bana: Myndefnið þvert á orð ráðherrans Þjóðvarðlið virkjað eftir að ICE skaut mann til bana Annar maður skotinn til bana af ICE Hótar að setja hundrað prósenta toll á Kanada „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Sjá meira