Innlent

Gönguferðir um Aðalbyggingu Háskóla Íslands í tilefni stórafmælis

Mynd/Pjetur
Boðið verður upp á gönguferðir um upp á gönguferðir um Aðalbyggingu Háskóla Íslands með leiðsögn á morgun í tengslum við námskynningu í skólanum. Tilefnið er að í sumar verða 70 ár liðin frá vígslu byggingarinnar.

Leiðsögumenn verða þeir Magnús Diðrik Baldursson, skrifstofustjóri rektorsskrifstofu og gæðastjóri Háskóla Íslands, og Magnús Guðmundsson, skjalavörður Háskólans og sagnfræðingur. Fram kemur í tilkynningu að þeir þekki báðir Aðalbygginguna eins og lófann á sér. Nafnarnir hafa starfað í byggingunni um árabil og þekkja byggingarsögu hússins býsna vel. Þá kemur fram í tilkynningunni að þeir kunna einnig ófáar skemmtilegar sögur sem tengjast mannlífi í byggingunni.

Boðið verður upp á gönguferðir um Aðalbygginguna samhliða námskynningu sem fer fram frá klukkan 11 til 16 í öllum helstu byggingum á Háskólasvæðinu.

Gulli slegin bygging



Guðjón Samúelsson, fyrrverandi húsameistari ríkisins, teiknaði Aðalbygginguna. Hún var reist fyrir fé sem kom að mestu frá Happdrætti Háskóla Íslands en byggingin var vígð þann 17. júní 1940.

Háskólabyggingin er gulli slegin í orðsins fyllstu merkingu því að byggingin er klædd með kvarsi sem í var blandað hreinu gulli, að fram kemur í tilkynningunni. „Mörgum kann að þykja mikið í lagt en ef öll klæðningin yrði skröpuð af kæmi í mesta falli á annað kíló gulls upp úr krafsinu. Byggingarefni hússins eru að öðru leyti að mestu íslensk, m.a. steinsteypa, líparít, baulusteinn, hrafntinna, silfurberg, grágrýti og hörpuskel."




Fleiri fréttir

Sjá meira


×