Segir allt um stuðninginn við Íraksstríð liggja fyrir 19. febrúar 2010 04:00 Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill að allar upplýsingar um aðdragandann að stuðningi Íslands verði gerðar opinberar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segist vera hlynnt því að allar upplýsingar um aðdraganda stuðnings Íslands við Íraksstríðið verði gerðar opinberar. Þetta sé þó ekki sérlega brýnt, enda liggi allar upplýsingar um málið þegar fyrir. Rætt var um tvær þingsályktunartillögur um málið á Alþingi í gær. Önnur snýr að opinberun allra upplýsinga um aðdragandann að ákvörðuninni, sem fyrir liggur að var tekin af Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni. Hin snýr að skipun þingmannanefndar sem falið yrði að rannsaka aðdragandann. Að þeirri tillögu standa 27 þingmenn úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki. Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sem mælti fyrir síðari tillögunni, sagði að mikilvægt væri að fá botn í það hvernig tveir menn gátu tekið svo stóra ákvörðun einir síns liðs. Þorgerður Katrín samsinnti því, en benti á að það sama þyrfti að ganga yfir aðrar umdeildar ákvarðanir sem ekki hefðu verið bornar undir þing eða þingnefndir. Tiltók hún Icesave-samningana í því samhengi. Þorgerður sagði að á sínum tíma hefði verið fyllilega eðlilegt að styðja innrásina, enda hefði hún verið gerð af okkar helstu bandalagsþjóðum. „Allar þær upplýsingar sem við höfum í þessu máli, það er sjálfsagt og eðlilegt að þær verði dregnar fram í dagsljósið. En þær liggja allar fyrir. Það er búið að ræða þetta út í hið óendanlega hér í þinginu fram til þessa og ef menn vilja einfaldlega fara í þessa vinnu aftur þá bara gera menn það.“ Þorgerður furðaði sig á forgangsröðinni hjá stjórnarliðum á þessum umbrotatímum, og sagði málið smjörklípu, hugsaða til að dreifa athyglinni frá því að ríkisstjórninni gengi illa. - sh
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Innlent Fleiri fréttir Fiskflutningabíll valt á Þorlákshafnarvegi „Vitum ekkert hvað við eigum von á mörgum“ Tveir flokkar í Garðabæ útiloka samstarf Vaka kaus sér nýja forystu Segir ráðherra fá of lausan taum í nýjum sóttvarnalögum Dyflinarreglugerðin ekki afnumin þótt orðalag breytist Hættusvæði vegna hraunrennslis, almyrkvi og afmæli Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent