Innlent

Segir allt um stuðninginn við Íraksstríð liggja fyrir

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir 
Varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill að allar upplýsingar um aðdragandann að stuðningi Íslands verði gerðar opinberar.
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir Varaformaður Sjálfstæðisflokksins vill að allar upplýsingar um aðdragandann að stuðningi Íslands verði gerðar opinberar.

Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, varaformaður Sjálfstæðisflokksins, segist vera hlynnt því að allar upplýsingar um aðdraganda stuðnings Íslands við Íraksstríðið verði gerðar opinberar. Þetta sé þó ekki sérlega brýnt, enda liggi allar upplýsingar um málið þegar fyrir.

Rætt var um tvær þingsályktunartillögur um málið á Alþingi í gær. Önnur snýr að opinberun allra upplýsinga um aðdragandann að ákvörðuninni, sem fyrir liggur að var tekin af Davíð Oddssyni og Halldóri Ásgrímssyni. Hin snýr að skipun þingmannanefndar sem falið yrði að rannsaka aðdragandann. Að þeirri tillögu standa 27 þingmenn úr öllum flokkum nema Sjálfstæðisflokki.

Steinunn Valdís Óskarsdóttir, sem mælti fyrir síðari tillögunni, sagði að mikilvægt væri að fá botn í það hvernig tveir menn gátu tekið svo stóra ákvörðun einir síns liðs.

Þorgerður Katrín samsinnti því, en benti á að það sama þyrfti að ganga yfir aðrar umdeildar ákvarðanir sem ekki hefðu verið bornar undir þing eða þingnefndir. Tiltók hún Icesave-samningana í því samhengi.

Þorgerður sagði að á sínum tíma hefði verið fyllilega eðlilegt að styðja innrásina, enda hefði hún verið gerð af okkar helstu bandalagsþjóðum. „Allar þær upplýsingar sem við höfum í þessu máli, það er sjálfsagt og eðlilegt að þær verði dregnar fram í dagsljósið. En þær liggja allar fyrir. Það er búið að ræða þetta út í hið óendanlega hér í þinginu fram til þessa og ef menn vilja einfaldlega fara í þessa vinnu aftur þá bara gera menn það.“

Þorgerður furðaði sig á forgangsröðinni hjá stjórnarliðum á þessum umbrotatímum, og sagði málið smjörklípu, hugsaða til að dreifa athyglinni frá því að ríkisstjórninni gengi illa.

- sh




Fleiri fréttir

Sjá meira


×