Ledley King: Ég verð tilbúinn 6. júní 2010 23:45 Ledley King er klár fyrir HM.
Ledley King, leikmaður Tottenham og enska landsliðsins, hefur sagt að hann muni ekki bregðast neinum fái hann það hlutverk að leysa Rio Ferdinand af hólmi í hjarta varnarinnar hjá Englendingum. Rio Ferdinand spilar ekki á HM í sumar vegna hnémeiðsla. „Sem leikmaður og atvinnumaður þá ertu alltaf reiðubúinn til að spila. Það hef ég alltaf gert, því maður veit aldrei hvað er handan við hornið," sagði King við blaðamenn sem heimsóttu æfingarbúðir landsliðsins í Rustenburg. „Það er mjög mikilvægt að halda sér heilum og í góðu standi. Ég er oftast í ræktinni eða sundlauginni að gera æfingar en fer svo út á æfingarsvæði tvisvar í viku og æfi með liðinu." „Ég hef sýnt það í vetur að ég get spilað vel þó svo að leikirnir séu með stuttu millibili. Sama hvað ég fæ margar mínútur inná vellinum þá get ég lofað því að ég verð tilbúinn," sagði King sem þarf að huga sérstaklega vel að líkamanum þar sem hann er þekktur fyrir meiðslavandræði sín. Talið er að þeir félagar King og John Terry, leikmaður Chelsea, spili saman í vörn Englendinga og segir King að það sé ekkert vandamál þó svo að hann æfi ekki alltaf með liðinu. „Þó svo að ég æfi aðeins tvisvar í viku með liðinu þá held ég að það sé ekkert vandamál. Ef að fjórir öftustu varnarmennirnir ná vel saman þá erum við til alls líklegir." „Ég hef þekkt Terry í langan tíma, hann er frábær leiðtogi á vellinum og mjög reyndur leikmaður líkt og ég svo það ætti ekki að vera vandamál fyrir okkur að spila saman," sagði King.
Mest lesið „Mun ekki kvarta næst þegar ég borga skatt“ Sport „Eru og voru ekki mínir bestu vinir“ Handbolti Ancelotti dásamar Hákon fyrir stórt kvöld Fótbolti „Vanvirðing við kvennaboltann á Íslandi“ Íslenski boltinn Spurður um íslenska dómarann og hellti þá úr skálum reiði sinnar Fótbolti Treyjur Liverpool taka breytingum Enski boltinn Aron og Kúveit redda strákunum okkar eftir svik Egypta Handbolti Furðu lostinn og reiður Nökkvi laus við bann Fótbolti Draumabyrjun Alberts sem reyndist hetja Lazio Fótbolti Ósanngjörn barátta um Gullskóinn Íslenski boltinn Fleiri fréttir Mac Allister svekktur að fá ekki nýjan samning Treyjur Liverpool taka breytingum Ekki sést á leikjum Nottingham Forest síðan í febrúar Ekkert benti til brottfarar Howe en félagið var með plan Joey Barton mun þurfa að dúsa áfram í fangelsi Raya lengi að taka sig til og Gabriel bestur í glímu Sjáðu sigurmark Ødegaard og glæsilegt jöfnunarmark Maitland-Niles Lögreglan rannsakar átök milli stuðningsmanns og leikmanns Versti stjóri Bretlandseyja? Geggjað mark Ödegaard skipti sköpum Ótrúlegt jöfnunarmark Everton undir blálokin Aston Villa jafnaði 56 ára gamalt met Haaland sló met Agüero Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Sjá meira