Lítill skaði ef þjóðin samþykkir 8. janúar 2010 05:30 Viðskiptaráðherra sat fyrir svörum á símafundi sem Íslensk-ameríska verslunarráðið stóð fyrir í Bandaríkjunum í gær, á sama tíma og yfir stóð blaðamannafundur forsetans á Íslandi. Fréttablaðið/Vilhelm
Stjórnmál Verði hægt að gera fólki grein fyrir þeim kostum sem raunhæfir eru í atkvæðagreiðslu um lög um ríkisábyrgð á Icesave skuldbindingum Tryggingasjóðs innstæðueigenda þá kveðst Gylfi Magnússon viðskiptaráðherra nokkuð bjartsýnn á að lögin verði samþykkt. Þetta kom fram á símafundi sem Íslensk-ameríska verslunarráðið stóð fyrir með ráðherranum og sérfræðingum á fjármálamarkaði laust fyrir hádegi að staðartíma í Bandaríkjunum í gær. Gylfi segir tvo kosti í stöðunni, að halda þjóðaratkvæðagreiðslu eða finna fyrir þann tíma lausn sem hugnanleg væri jafnt Íslendingum, Bretum og Hollendingum. Hann áréttar þó að engar viðræður séu hafnar um aðra lausn og að óvíst sé hvort slík leið sé fær. Verði lögin samþykkt í þjóðaratkvæðagreiðslunni segir Gylfi tiltölulega lítinn skaða verða af þeirri tveggja mánaða töf sem fyrirsjáanleg er á lausn Icesave-deilunnar. Versta hugsanlega niðurstaða segir hann hins vegar ef viðræður við Breta og Hollendinga fara á byrjunarreit og lánafyrirgreiðsla annarra þjóða í tengslum við efnahagsáætlun stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins (AGS) fer í bið. Gylfi segir að best hefði verið að ljúka Icesave-málinu eins hratt og kostur er. Komi til kosninga þá muni stjórnvöld gera grein fyrir kosti og lesti á þeim valkostum sem fólk stendur frammi fyrir, en samþykkt laganna sé að hans mati skásta niðurstaðan sem í boði sé. - óká
Mest lesið „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Innlent Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin Innlent „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ Innlent Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Innlent Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Innlent Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Innlent Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Innlent Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Innlent Herinn sé reiðubúinn að tortíma Íran verði Trump ráðinn af dögum Erlent Félag Kushner hafi fengið landið vegna falsaðra afsala Erlent Fleiri fréttir Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Gagnrýna könnun sem sýni fram á stuðning við dánaraðstoð Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Kynferðisbrot á Hólum og gular viðvaranir Konan sem fannst meðvitundarlaus í tjaldi látin „Ef þú ætlar austur verður þú að fara norðurleiðina“ „Þetta mál er náttúrulega bara einn harmleikur“ Þrír handteknir fyrir brot á lögreglusamþykkt Erfitt að stöðva umfangsmikla sölu Var illa sofin og endaði á bíl úr gagnstæðri átt Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Sjá meira