Yfir 250 heimili fara á uppboð í október 5. október 2010 18:30
Ríflega helmingur þess húsnæðis sem fyrirhugað er að selja nauðungarsölu í mánuðinum eru lögheimili fjölskyldna. Yfir 250 heimili fara á uppboð. Dómsmálaráðuneytið hefur tekið saman hjá sýslumönnum upplýsingar um fjölda húseigna sem til stendur að selja á nauðungaruppboði í október. Þetta eru svonefnd framhaldsuppboð; lokasala. Í allt eru þetta á fimmta hundrað nauðungarsölur, en rétt er að nefna að þessar tölur geta breyst, því fólk getur samið fram á síðustu stundu. Enn fremur er þetta ekki allt saman íbúðarhúsnæði, heldur atvinnuhúsnæði, tómar blokkir í eigu verktaka, og svo eru dæmi um að húsnæði sem er í útleigu fari á uppboð; það eru sumsé ekki leigjendurnir sjálfir sem skulda í húsnæðinu. En til stendur að bjóða upp ríflega 250 íbúðir á landinu öllu í mánuðinum; íbúðir þar sem fólk á eignirnar og á þar lögheimili. Þetta lítur svona út ef við horfum á landið allt. Á Akureyri til að mynda er fyrirhugað að bjóða upp 8 íbúðir, þar sem eigandinn á heimili; en í heildina er gert ráð fyrir 25 lokasölum. Í Hafnarfirði er talan 22 en heildarfjöldi lokasala er yfir 50. En hlutfallið er langhæst í Reykjanesbæ, umdæmi sýslumannsins í Keflavík. Þar er fyrirhugað að selja 89 eignir lokasölu, en þar af eru 82 íbúðir í eigu venjulegs fólks. Það sem af er ári, hafa 1.306 eignir verið selda á nauðungaruppboði. En það skekkir myndina að ekki eru upplýsingar um hversu mörg heimili er hér um að ræða. Þarna eru meðtaldir sumarbústaðir, tómar verktakablokkir og jafnvel hesthús. En að eign sé seld nauðungarsölu, er ekki það sama og að fólk sé borið út. Heimild er fyrir því í lögum að fólk geti búið í húsnæði sínu í 12 mánuði eftir sölu. Sýslumenn segja dómsmálaráðuneytinu, að þeir hafi ekki orðið varir við að útburðarmálum hafi fjölgað. Enn fremur virðist algengt að fólk búi áfram í húsnæði sem selt hafi verið, með samþykki þess sem hana keypti. Undanfarin ár voru útburðarmál í Reykjavík flest árið 2004, um 100, en voru innan við 50 í fyrra.
Mest lesið Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Dróni hæfði farþegarútu fulla af námuverkamönnum Erlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Innlent Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Innlent Lést á sjúkrahúsi mánuði eftir harmleikinn Erlent Fleiri fréttir Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni „Liggur maður þarna á jörðinni og það var verið að berja hann í stöppu“ Vilja Hjallastefnugrunnskóla í Árborg Sjá meira