Skoraði Veigar Páll framhjá framtíðarmarkverði Man United? Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 5. október 2010 09:30 Veigar Páll Gunnarsson.
Eric Steele, markvarðarþjálfari Manchester United, var meðal áhorfenda á leik Aalesund og Stabæk í norsku úrvalsdeildinni í fótbolta um helgina. Enginn lék þar betur en íslenski landsliðsmaðurinn Veigar Páll Gunnarsson en Steele var þó ekki að fylgjast með honum heldur danska landsliðsmarkverðinum Anders Lindegaard. Veigar Páll Gunnarsson skoraði glæsilegt mark framhjá Lindegaard eftir laglegan einleik en þessi 26 ára Dani stóð sig annars vel í markinu í þessum leik og er af mörgum talinn vera einn allra besti markvörðurinn á Norðurlöndum. Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Eric Steele fer til Noregs að skoða Anders Lindegaard en það er margt sem bendir til þess að Manchester United sjái í honum arftaka Hollendingsins Edwin van der Sar og þar með væntanlegan framtíðarmarkmann liðsins. Það hefur gefist vel að fá danskan markmann í mark Manchester United eins og dæmið um Peter Schmeichel sýnir og það er víst ofarlega á forgangslista Sir Alex Ferguson, stjóra United, að ganga frá markmannsmálunum sem fyrst. Hinn 39 ára gamli Van der Sar er líklega á sínu síðasta ári og Fergusson hefur ekki mikla trú á Tomasz Kuszczak.
Mest lesið Brotinn Gylfi Þór fórnar sér: „Brynja, ég elska þig“ Fótbolti Ákvörðun Vals algjörlega galin og það sýnir sig núna Íslenski boltinn Allt á suðupunkti: Saka Ísraela um að hrækja á aðstoðarmann Heimis Fótbolti „Þetta er ástæðan fyrir því að allir hata Bandaríkin“ Fótbolti Ökuþórar hrista hausinn: „Eins og Lego kappakstur“ Formúla 1 Bakgarðsáskorunin: Hroturnar heyrðust í beinni útsendingu Sport Ráða nýjan yfirþjálfara eftir líkamsárás forverans Sport Meiddist í Portúgal Enski boltinn Gylfi með til Eistlands Fótbolti Sveindís til Króatíu eftir dramatík gegn toppliðinu Fótbolti Fleiri fréttir Dregur sig úr landsliðshópnum Meiddist í Portúgal Sir Alex Ferguson var logandi hræddur Óttast um líf sitt og lætur sig hverfa Uppljóstrarinn í máli City sviptur vernd: „Staða hans er grafalvarleg“ City-menn búnir að áfrýja Annar til að hvolfa bílnum á mánuði Stjórnarformaður City nýtur diplómatískrar friðhelgi Klopp býr sig ekki undir að fá fleiri titla Forsætisráðherrann notið góðs af eigendum City og vill síður missa þá Etihad hótar að kæra ensku úrvalsdeildina Myndi henda öllum medalíum í ruslið Guardiola tjáir sig: „Við komumst í gegnum þetta saman“ Richards niðurbrotinn: „Hringdi grátandi í mig“ „Samsæri ensku úrvalsdeildarinnar gegn City“ Vandræðalegt viðtal við stjórnanda City Harðorð yfirlýsing Manchester City Tjáir sig um City: „Íþróttalegt réttlæti var ekki til staðar“ City sekir: Trufluðu rannsókn og svindl upp á 140 milljarða Fundaði með Sir Alex um að spila á miðjunni með Keane City vissi af dómnum í júlí og eyddi 450 milljónum Viðbrögðum framkvæmdastjóra Manchester City lekið í BBC Lætur Dean og Rooney heyra það: „Ekki séns að ég sætti mig við þetta kjaftæði“ Isak og Gakpo sendir meiddir heim Mancini tjáir sig um City: „Þeirra vandamál, ekki mitt“ Stjórnarformaður Manchester City tjáir sig Manchester City dæmt í 114 af 115 ákæruliðum Hægt hafi verið að koma í veg fyrir dauða sonar þeirra Rooney tekur fyrir kjaftasögur Braut kynferðislega á Andy Carroll Sjá meira