Nokkrir ófriðarseggir skáru sig úr hópi friðsamra mótmælenda Jón Hákon Halldórsson skrifar 5. október 2010 12:00 Mynd/ Anton.
Stefán Eiríksson lögreglustjóri segist vera afar sáttur við framgöngu lögreglumanna í gærkvöldi. „Aðgerðirnar gengu afar vel upp. Við höfðum góða stjórn á þessu verkefni alveg frá fyrstu mínútu til hinar síðustu," segir Stefán í samtali við Vísi. Stefán segir að afar fátt hafi gerst sem lögreglan hafi ástæðu til að hafa áhyggjur af. Árangurinn megi þakka góðum undirbúningi og fagmennsku stjórnenda og lögreglumannanna sem þarna hafi verið við störf. „Þeir búa yfir mikilli reynslu á þessu sviði, sem er að sumu leyti til ekki komin til af góðu heldur vegna þess að við höfum fengist við þetta verkefni áður," segir Stefán. Þá segir Stefán að það hafi skipt mjög miklu máli að lögreglan notaði í fyrsta sinn girðingar til að afmarka með skýrum hætti svæði sem gerðu það að verkum að það urðu nánast engin bein átök milli lögreglu og mótmælenda.Stefán Eiríksson er ánægður með þann árangur sem lögreglan náði í gær. Mynd/ Stefán.„Skuggahliðarnar á þessu máli eru auðvitað þær að að þarna voru nokkrir ólátaseggir sem skáru sig úr stórum hópi friðsamra mótmælenda og skeyttu skapi sínu á dauðum hlutum og lögreglumönnum með því að kasta grjóti og ýmsu öðru í þá," segir Stefán. Þetta sé gjörsamlega ólíðandi framkoma og skemmi fyrir þeim sem eru að mótmæla, þeirra málstað, og sé alvarleg árás á lögregluna. Þrír lögreglumenn eru meiddir eftir mótmælin, en meiðsli þeirra virðast ekki vera alvarleg. „Þeir leituðu á slysadeild til aðhlynningar og til að fá nánari greiningu á því fyrir hvaða skakkaföllum þeir urðu," segir Stefán. Hann segir að enginn hafi slasast alvarlega og enginn verið handtekinn. „við þurftum þó að fjarlægja nokkra eða færa þá örlítið til í hópnum af mismunandi ástæðum. Það er bara eðlilegur hluti af þessu öllu saman þegar að mikill fjöldi manna kemur saman," segir Stefán. Stefán segir ekki hægt að segja til um það hvert framhaldið verði. „En við erum undir það búnir að takast á við flókin verkefni af þessum toga hér eftir sem hingað til," segir Stefán. Það sé auðvitað óskandi að þetta verði á örlítið friðsamari nótum. Það þjóni engum tilgangi að fólk sé að eyðileggja sínar eigin eigur. „Það er verið að ráðast gegn þinghúsinu sem er í eigu þjóðarinnar. Það er verið að brenna bekki sem eru í eigu borgarbúa og það er verið að ráðast að bílum sem að ríkið á og eru notaðir til að flytja ráðherra á milli staða," segir Stefán. Þegar uppi verði staðið muni sá kostnaður falla á almenning.
Mest lesið „Svolítið súrt þegar við erum búin að vera að byggja upp þarna flotta aðstöðu“ Innlent Sárkvalin og þurfti að borga eina og hálfa milljón fyrir aðgerð Innlent „Er löggjafarvaldið sofandi á verðinum?“ Innlent Einn í gæsluvarðhaldi vegna tengsla sinna við innbrotahrinu Innlent Blöskrar áfengisauglýsingar RÚV Innlent Galið kerfi, hatur á samfélagsmiðlum og boltastemning í beinni Innlent Slasaðist alvarlega við heyskap Innlent Brotist inn í þrjá gáma og dýr verkfæri tekin ófrjálsri hendi Innlent Nálægt því að útrýma moskítóflugu á Suðurlandi Innlent Stórbruni í Drammen og dularfull staða moskítóflugunnar Innlent Fleiri fréttir Hvassviðri hefur sett strik í reikninginn á Bræðslunni Flúðu heimili sitt vegna gróðurelda: „Þetta verður ekki fallegt, fjallið er allt brunnið“ Þúsund sjúkraflug á árinu: „Fyrsta skipti sem við brjótum þann múr“ Bráð veikindi og alelda bíll við Kambana Komst undan ásamt fjölskyldunni „Við ákváðum að snúa bara vörn í sókn“ Fæðingardeildin hafi gleymst í hita leiksins Eldur í sumarbústað við Suðurlandsveg Þúsund ára gömul mynt fannst í gamalli verbúð Íslendingur í grennd við Madríd og met í sjúkraflugferðum Fleiri en þeir sem tókust á lentu í átökum ungmenna Áttu eitthvað vantalað við manninn sem endaði fram af svölunum Ari úrskurðaður í gæsluvarðhald á Kýpur Fleygt fram af svölum á fyrstu hæð fjölbýlishúss Eigi ekki að kosta milljónir króna að klæðast landsliðsbúningnum Skynet langt undan en íslensk stjórnvöld þurfa að vera undirbúin „Klappað eins og það væri stórstjarna að koma inn“ Óttast að „bottar“ muni ýta undir ágreining í aðdraganda atkvæðagreiðslu Íslensk hjón þurft að flýja undan gróðureldum á Spáni Báti var siglt yfir kajakræðara Kvöldfréttir í heild sinni „Ég hef aldrei lent í öðru eins“ Fimm fluttir til aðhlynningar eftir árekstur Skipverjarnir áttu að fá 2,5 milljónir króna á haus Endurkoma Herjólfs vekur upp ýmsar spurningar Standa með félagsmanni sem var sviptur frelsi Íslendingur á Benidorm stöðvaður eftir tíu daga svikahrinu Halda samráðsfund vegna innbrotahrinu Auka nákvæmni rauntímaupplýsinga Vara við hviðum á landinu suðaustanverðu Sjá meira