Eiður. Þetta var stórt skref fyrir mig Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. september 2010 10:15 Eiður Smári Guðjohnsen. Nordic Photos / Getty Images
Eiður Smári Guðjohnsen spilaði með varaliði Stoke sem vann 4-1 sigur á Walsall í gær. Eiður Smári spilaði allan leikinn og fagnaði því í viðtali á heimasíðu félagsins. „Að komast í gegnum allar 90 mínúturnar var stórt skref fyrir mig," sagði Eiður Smári. „Mér leið mun betur en þegar ég spilaði í 45 mínútur fyrir varaliðið í síðasta leik og ég hef trú á því að þetta sé allt á réttri leið." Eiður Smári samdi við Stoke í lok síðasta mánaðar eftir að hafa verið á mála hjá AS Monaco í eitt ár. Hann æfði þó ekkert með síðarnefnda liðinu í sumar. „Mín staða hefur ekki verið ákjósanleg. Ég hefði kosið að taka þátt í heilu undirbúningstímabili með hinum strákunum, þar með hefði ég verið tilbúinn strax frá fyrsta degi." „En ég vissi að ég þyrfti að ná öðrum leikmönnum hvað þetta varðar. Þetta hefur ekki verið sérstaklega skemmtilegt en þetta var eitthvað sem þurfti að gera." Eiður Smári kom ekkert við sögu í leik Stoke og Fulham í deildabikarnum á þriðjudagskvöldið. Hann var ónotaður varamaður í leiknum þó svo að hann hafi um tíma hitað upp, stuðningsmönnum Stoke til mikillar gleði. „Þegar ég verð tilbúinn mun ég hafa stóru hlutverki að gegna í tímabili Stoke og mun veita stuðningsmönnunum ástæðu til að öskra." „Stjórinn ákvað að nota mig ekki í deildabikarnum svo ég gæti spilað heilan leik með varaliðinu. Þegar heildarmyndin er skoðuð þá var þetta rétt ákvörðun hjá honum. Mér leið mun betur eftir að hafa spilað í 90 mínútur."
Mest lesið Áhrifavaldar sýna vanvirðingu á risamóti í tennis Sport Myndband ekki fyrir viðkvæma: „Horfi niður og sé höndina mína í einhverri steik“ Íslenski boltinn Bað dómarann um hjálp út af megnri marijúanalykt Sport Enn kynt upp í rígnum: Ekroth keyrði utan í Aron Íslenski boltinn Uppgjörið: FH - Stjarnan 38-31 | Sannfærandi sigur í fyrsta leik undir stjórn Arons Handbolti Ótrúleg björgun Völsungs og Grindavík fallin Íslenski boltinn „Gangandi martröð“ Enski boltinn Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Enski boltinn Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Enski boltinn Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Enski boltinn Fleiri fréttir Hull hélt hreinu og ekkert mark komið hjá Villa Arbeloa í brasi City marði Coventry Steindautt er Tottenham náði í fyrsta stigið Ramsey bjargaði stigi Fallin vonarstjarna Liverpool dæmd en sleppur við fangelsi Stólpagrín gert að leikmanni Ipswich Yfirgefur Liverpool fyrir Sádi-Arabíu Segist aldrei hafa efast um Gakpo Sjáðu mörk Isaks í fyrsta leik Barcola Isak heitur í sigri Liverpool og strax búinn að jafna síðustu leiktíð Carrick himinlifandi eftir kaup sumarsins Mætir gömlu félögunum í Manchester United í endurkomunni til Englands Fékk bombu í andlitið en meiddist á hné Tróð inn lagatitlum og enginn tók eftir því Sér enn eftir að hafa hafnað tækifærinu „Gangandi martröð“ Stórir póstar utan Meistaradeildarhóps Liverpool Skaðar orðspor dómara: Lék sér að því að flauta ekki upp á grín Tielemans tók vítið með Bruno Martinelli seldur til Sádi-Arabíu Bestu kaupin í sögu enska boltans Barcola í hóp á morgun Liðin í enska boltanum eyddu meira en stærstu deildir Evrópu til saman Liverpool fékk nýjan markvörð Stóðst læknisskoðun og stakk svo af Liverpool hringdi svo hann sagði nei við Chelsea Lækkaði launin til að upplifa drauminn Fengu þrjá á lokadegi Tókst ekki að ræna Belganum Sjá meira