Rannsókn hafin á slysinu að Fjallabaki 8. apríl 2010 05:00 Sveinn K. Rúnarsson
Rannsókn er hafin á tildrögum þess að tvennt beið bana á Fjallabaki norðan Mýrdalsjökuls í fyrradag. Lögreglan á Hvolsvelli fer með rannsóknina og nýtur liðsinnis rannsóknardeildar lögreglunnar á Selfossi. Fólkið villtist af leið í útsýnisferð að gosstöðvunum á Fimmvörðuhálsi og varð bensínslaust og símasambandslaust um 30 kílómetra frá Fljótshlíð. Hálfsextugur karlmaður og 43 ára kona urðu úti þegar þau yfirgáfu bílinn til að leita að hjálp en ein kona fannst á lífi eftir fjórtán kílómetra göngu. Hún hafði ekki verið yfirheyrð í gær en til stóð að gera það í gærkvöldi eða í morgun. Fram kom í fréttum RÚV í gær að símasendum hefði verið komið upp á svæðinu, en þeir hefðu ekki verið í sambandi þar sem ekki hefur verið tengt í þá rafmagn. Fólkið var í sambandi við lögreglu aðfaranótt mánudags eftir að það hafði fest sig úti í á, að því er það hélt í Gilsá. Fimm tíma leit lögreglu skilaði engum árangri en henni lauk þegar fólkið hafði samband á nýjan leik og sagðist vera óhult og komið af stað. Ekkert fréttist síðan af fólkinu fyrr en ættingjar þess lýstu áhyggjum af þeim nítján klukkustundum síðar. Sveinn K. Rúnarsson, yfirlögregluþjónn á Hvolsvelli, segir að hann og hans menn hafi velt því mikið fyrir sér hvort þeir hefðu átt að bregðast öðruvísi við þegar fólkið sagðist hólpið og á heimleið. „En við trúðum því bara og treystum sem fólkið sagði og höfðum enga ástæðu til að rengja það í sjálfu sér,“ segir Sveinn. „Við fáum svona símtöl í hverri viku. Þessi beiðni var ekkert ólík því sem gerist reglulega. Við sjáum ekkert í þessu ferli sem hefði átt að breyta þessari ákvörðun okkar.“ stigur@frettabladid.is
Mest lesið Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Innlent Vill mikilvæga herstöð aftur og hótar Afgönum öllu illu Erlent Telur áform ráðherra vanhugsuð Innlent Austurríki hvetur ríki til að draga sig ekki úr Eurovison Erlent Þrjátíu handteknir í óeirðum í Hollandi Erlent Efast um að olíuleit beri árangur Innlent Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Innlent Sænskur sjúkraflutningamaður myrtur í útkalli Erlent Grænlendingar ná ekki að klára hvalveiðikvóta Erlent Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Innlent Fleiri fréttir Staða Framsóknarflokksins, afnám áminningarskyldu og Evrópumálin í Sprengisandi Telur áform ráðherra vanhugsuð Líkamsárás í Hafnarfirði og maður með sveðju í Kópavogi Hyggst gera tilraun með lögregludróna í héraði Skorradalshreppur og Borgarbyggð sameinast Efast um að olíuleit beri árangur Plokkarar verðlaunaðar á Selfossi Píratar taka upp formannsembætti Ýkt umræða um olíufund, netárás á flugvelli og bakgarðshlaup í beinni Nýjar framkvæmdir beina fólki að umdeildum gatnamótum Netárásin gæti haft áhrif á ferðir Icelandair Ráðherra til í umræðu um sumarfrí barna „Ísland á heima í hjarta Evrópu“ Allt að gerast í Rangárþingi hvað varðar lífsgæði íbúa Sniðgangan friðsæl leið til að mótmæla og sýna samstöðu „Skiljanlegt að mörgum blöskri að vita að hann gangi laus“ Fordæmalaust kynferðisbrotamál og viðbragð NATO við brölti Rússa Vill breyta nafni Viðreisnar Ýmsar leiðir fyrir lögreglu til að tryggja að endurkomubann virki Landsþing Viðreisnar hafið Peningakassa stolið af hóteli í miðbæ Reykjavíkur Breyta Hlöðunni í fræðslusetur fyrir 88 milljónir Ísland gegnir formennsku í Norræna blaðamannasambandinu Ísland rampar upp Úkraínu Drógu vélarvana togara í land „Það er mikil reiði í Grafarvoginum út af þessu“ Fékk ekkert símtal frá gömlu vinnufélögunum Leiðinlegt að óprúttnir aðilar skemmi fyrir heyrnarlausum Gervigreindarvélmenni mætt til starfa til að flokka rusl Segir lítið til í orðum ráðherra Sjá meira