Jón Gnarr nýtt leikskáld Borgarleikhússins 28. janúar 2010 13:24 Stjórn Leikritunarsjóðsins, Vigdís Finnbogadóttir, Brynjólfur Bjarnason og Magnús Geir Þórðarson ásamt Auði Jónsdóttur rithöfundi fráfarandi leikhússkáldi og Jóni Gnarr sem tekur við titlinum Leikskáld Borgarleikhússins árið 2010.
Jón Gnarr leikari og skáld hefur verið valinn leikskáld Borgarleikhússins úr stórum hópi umsækjanda. Jón mun starfa í Borgarleikhúsinu næsta árið þar sem hann mun sinna ritstörfum fyrir leikhúsið. Markmið með ráðningu leikskálds á vegum Leikritunarsjóðs Leikfélags Reykjavíkur er að laða hæfileikaríkt fólk að leikhúsinu, kynna því leikhúsformið og efla þannig íslenska leikritun, að fram kemur í tilkynningu frá Borgarleikhúsinu. Úr umsögn dómnefndar: „Jón Gnarr hefur sýnt það og sannað með verkum sínum að hann er snjall penni sem hefur gott næmi fyrir samtalsforminu og persónusköpun. Þó húmorinn sé gjarnan í forgrunni er alvaran aldrei langt undan. Það er mikill fengur að fá þennan reynda listamann til liðs við leikhúsið.“ Stefnt er að því að Jón riti leikverk, eitt eða fleiri, á tímabilinu með uppsetningu í Borgarleikhúsinu í huga. Leikskáldið verður hluti af starfsliði hússins allt tímabilið og fær aðgang að allri starfsemi leikhússins. Leikritunarsjóður Leikfélags Reykjavíkur réð fyrsta leikskáldið, Auði Jónsdóttur rithöfund, í upphafi ársins 2009 og er hún því að ljúka sínum árssamningi. Stefnt er að uppsetningu á nýju leikriti Auðar á næsta leikári. Formaður stjórnar Leikritunarsjóðsins er frú Vigdís Finnbogadóttir, heiðursfélagi Leikfélags Reykjavíkur. Aðrir í stjórn eru Brynjólfur Bjarnason og Magnús Geir Þórðarson, leikhússtjóri.
Mest lesið Eiga von á allt að 35 metrum á sekundu í hviðum Veður Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Innlent „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ Innlent „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Innlent „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Innlent Eldur í Bryggjuhverfi Innlent Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Innlent „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Innlent Lést er hún fagnaði sigri Frakka Erlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent Fleiri fréttir Hvað er best að gera þegar maður er bitinn? Bandero yfirgefur Íslandsmið vegna veikinda Hryðjuverkamálið, Landsmót hestamanna og neytendur „hafðir að fíflum“ með Lite-bjórum „Vinalegt“ spjall í bílakjallara sem varð að manndrápstilraun „Svimandi“ bótakröfur á leiðinni frá Sindra Snæ og Ísidóri Strandamenn klárir í almyrkvann Hryðjuverkamálinu lokið fjórum árum eftir handtöku „Sannarlega áhugaverð gjöf“ Þyngja þurfi dóma þeirra sem láta sér ekki segjast „Hver þarf Tenerife þegar þú hefur Hérað?“ Segir undanþágur rekast á grunnforsendur ESB „Erfitt að vera svona lengi úti á sjó“ Flýtir afgreiðslu um allt að mánuð „Ég hef aldrei farið á Vog, ekki enn þá“ „Við skulum ekki láta grípa okkur með buxurnar á hælunum þetta árið“ Ungir síbrotamenn, eldur í Bryggjuhverfinu og andstæður í veðrinu „Við skírðum hana Halla Sykurvatn Tómatsósudóttir“ Eldur í Bryggjuhverfi Jarðböðin við Mývatn opin á nýjan leik „Við erum stórveldi, það er ekkert ríki eins og við“ Vegagerðin varar við vindi Hjólað yfir á rauðu: „Lögin heimila allavega ekki þessa hugsun“ Handtekinn eftir að hafa horft á HM undir stýri Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Sjá meira