Enski boltinn

Chelsea í bikarúrslit

Henry Birgir Gunnarsson skrifar
Úr leik liðanna í dag.
Úr leik liðanna í dag.

Chelsea komst í dag í úrslit ensku bikarkeppninnar með sigri á Aston Villa, 3-0. Leikið var á Wembley-leikvanginum í London.

Það tók Chelsea drjúgan tíma að brjóta vörn Aston Villa en það var Didier Drogba sem braut ísinn á 67. mínútu.

Florent Malouda kláraði síðan leikinn einni mínútu fyrir leikslok. Lampard stráði síðan salt í sárin með marki í uppbótartíma.

Chelsea mætir annað hvort Tottenham eða Portsmouth í úrslitum en seinni undanúrslitaleikurinn fer fram á morgun.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×