Innlent

Framlengt á fimm Litháa

Héraðsdómur Reykjaness framlengdi í gær gæsluvarðhald yfir fimm litháískum karlmönnum til 8. mars. Tveir þeirra kærðu úrskurðinn til Hæstaréttar.

Mennirnir sem um ræðir eru ákærðir, auk eins Íslendings, fyrir mansal gagnvart nítján ára litháískri stúlku. Þá eru sumir úr hópnum ákærðir fyrir hylmingu, líkamsárásir, hótanir og fjárkúgun.

Fyrir liggur rökstuddur grunur um að þeir tengist allir glæpa­samtökum í Litháen. - jss






Fleiri fréttir

Sjá meira


×