Listaverksafn Kaupþings í eigu Arion banka 23. febrúar 2010 19:23 Katrín Jakobsdóttir. Mynd/Valgarður Gíslason
Listaverkasafn gamla Kaupþings verður áfram eigu Arion banka samkvæmt samkomulagi sem undirritað var í dag. Listaverkasöfn bankanna komust óvart í einkaeign þegar bankarnir voru einkavæddir á sínum tíma. Bankarnir áttu um fjögur þúsund verk þegar þeir hrundu, þar af Kaupþing um tólf hundruð. Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, talaði fyrir því á sínum tíma að færa listaverkin aftur til þjóðarinnar eftir að ríkið tók bankana yfir. Miðað við það samkomulag sem undirritað var í Þjóðmenningarhúsinu í dag er ljóst að þau áform eru nú úr sögunni. Arion banki mun halda safninu en ríkið fær forkaupsrétt að þeim tæplega tvö hundruð verkum sem talin eru mikilvæg fyrir íslenska listasögu. Tvö þessara verka voru færð Listasafni Íslands að gjöf í dag - en um ræða verkin Flosagjá eftir Þórarinn B. Þorláksson og Mansöngur eftir Jóhönnu Yngvadóttur. „Ég lít svo á að þetta sé fyrsta skrefið í því," segir Katrín Jakobsdóttir, menntamálaráðherra, aðspurð hvers vegna verkin hafi ekki verið færð aftur til þjóðarinnar líkt og hún sagði á sínum tíma. „Það sem við gerðum í raun og veru er að við létum fara fram ákveðið listfræðilegt mat á söfnum bankanna. Þau eru mjög stór og niðurstöður okkar sérfræðinga er að þarna er ákveðin hluti verka sem er talin mikilvægur að komist í eigu þjóðarinnar og ríkið fær kauprétt á þessum verkum til tólf ára." Katrín segir að legið hafi fyrir að þjóðin þyrfti að kaupa verkin. „Þegar bankarnir voru seldir á sínum tíma þá fóru verkin með. Það var gagnrýnt á sínum tíma en við getum ekki tekið allt aftur sem gert er," segir Katrín.
Mest lesið Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu Innlent Sigríður Björk aftur færð til Innlent Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Innlent „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Innlent Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Innlent Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent Foksandur og rykagnir búa í þokunni Innlent Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Innlent „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Innlent „Jæja, herra Heuermann. Mér skilst að þú hyggist játa fyrir mér þessi morð?“ Erlent Fleiri fréttir Sviptur réttindunum á staðnum Tilfærsla Sigríðar Bjarkar tímabundin Alma Möller fagnar nýjum sóttvarnalögum „Líður stundum eins og ég sé með pólitískan eltihrelli“ Grindavík og Hveragerði talin í mestri hættu vegna eldgosa Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur í Dettifossmálinu Ekki hafi verið hægt að sýna fram á meinta nauðgun Forseti klökknaði þegar Þórdís Kolbrún kvaddi Megi búast við útskúfun úr samfélaginu eftir afplánun Orðinn máttvana í útlimum þegar hjálpin barst Sigríður Björk aftur færð til Gagnrýnin komi ekki á óvart en telja sig vera að gera rétt Kosningapallborð fréttastofu: Mun Sjálfstæðisflokkurinn halda velli í Garðabæ? Launamál í verkalýðshreyfingunni og þingmaður hætt kominn á kajak Ingibjörg þarf ekki að víkja í máli Margrétar Foksandur og rykagnir búa í þokunni Var bjargað úr sjónum eftir hálftíma: „Slysin gera ekki boð á undan sér“ Bílvelta á Hringbraut Umfangsmikil lögregluaðgerð vegna líkamsárásar Tungumálið gerir Ísland að landi tækifæranna Ingó veðurguð hefur fengið meira en nóg Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Einn handtekinn í umfangsmikilli lögregluaðgerð á Akureyri Greinir frá nauðgun eftir sýningu í Þjóðleikhúsinu „Dreginn inn í umræðu þar sem engar staðreyndir eða neitt liggja fyrir“ Fyrstu vindmyllurnar komnar í Þorlákshöfn Hlegið á þingi: „Ég er ekki hundrað ára“ Samfylking og Sjálfstæðisflokkur hækka flugið Ný könnun og frægasti köttur landsins Kona flutt á sjúkrahús eftir bruna í kjallaraíbúð Sjá meira
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent
Hafi flestir verið að gera félögum greiða þegar þeir tóku við efnum í sófa og morgunkornskössum Innlent