Bellamy og Mancini rifust eins og hundur og köttur Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 19. febrúar 2010 10:00 Craig Bellamy og Roberto Mancini. Mynd/AFP
Það er allt komið upp í háaloft á milli Craig Bellamy og Roberto Mancini, stjóra Manchester City samkvæmt frétt á The Times eftir að þeir rifust eins og hundur og köttur í gærkvöldi. Bellamy var mikill stuðningsmaður Mark Hughes og margir voru búnir að bíða eftir því að upp úr syði á milli þeirra. Samskipti þeirra Bellamy og Mancini í gær enduðu á því að Mancini öskraði á velska framherjann og skipaði honum að láta ekki sjá sig hjá félaginu næstu þrjá mánuðina. Upphafið að rifildi þeirra var að Bellamy neitaði að mæta á aukaæfingu hjá einum af ítölsku aðstoðarþjálfurum Mancini. Garry Cook, stjórnarformaður City og Brian Marwood, yfirmaður fótboltamála, höfðu samband við Bellamy þegar hann var rokinn heim og báðu hann um að biðja Mancini afsökunar. Bellamy var þó ekki á því. Manchester City mætir Liverpool á sunnudaginn í einum af úrslitaleikjunum í baráttunni um fjórða sætið og þar með síðasta sætið inn í Meistaradeildina á næsta tímabili.
Mest lesið Sagði áhorfanda að naglhalda kjafti Golf Uppgjörið: ÍA - KR 3-2 | Skagamenn á sigurbraut Íslenski boltinn Uppgjörið: Keflavík - HK 4-0 | Keflavík í Bestu deildina Íslenski boltinn Fyrirliði Bandaríkjanna ver gjammandi stuðningsmennina Golf „Strætó númer 15 stoppar beint fyrir utan KR-völlinn“ Fótbolti Uppgjörið: Vestri - ÍBV 0-5 | Enn syrtir í álinn hjá Vestra Íslenski boltinn Allir leikmenn ÍR hættir á einu bretti Fótbolti „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Enski boltinn Uppgjörið: Afturelding - KA 3-2 | Heimamenn sluppu með sigurinn Íslenski boltinn Grínisti hættir og biðst afsökunar á að hafa byrjað níðsöngva í garð Rory Golf Fleiri fréttir Dramatík í uppbótartímanum Villa kláraði dæmið í byrjun seinni hálfleiks „Hvernig stendur á því að hann er enn í starfi?“ Slot varpaði sökinni á Frimpong Sjáðu allt það helsta úr enska boltanum í gær Fyrsta stig Úlfanna í hús Tvö sjálfsmörk og tvö frá Haaland í sigri City Amorim svekktur: „Þetta er mjög sárt“ Nuno tekinn við West Ham Palace eina ósigraða liðið eftir dísætan sigur á Liverpool Skoruðu þrjú manni fleiri gegn Chelsea Fernandes klikkaði á víti og United tapaði fyrir Brentford Nuno að taka við West Ham Potter rekinn frá West Ham Ekitike var ekki sektaður: „Það má gera mistök hjá þessu félagi“ Palmer frá næstu þrjár vikurnar Flottustu mörkin hjá Newcastle og Arsenal: Snilld Bergkamps og þrumufleygur Tiotés Man. Utd tryggir sér aftur táning frá S-Ameríku en fær hann ekki strax Látinn eftir höfuðhögg í leik Hvenær fær Lammens sénsinn hjá Man. Utd? Mun skrifa undir nýjan fimm ára samning við Arsenal Kristófer djarfur í Fantasy: Tuttugu mínusstig í síðustu tveimur umferðum „Ég væri dáinn ef hún væri ekki hér“ Synir Emile Heskey spiluðu saman í fyrsta sinn fyrir City Velskur slagur og meistarar mætast í sextán liða úrslitum Eze með fyrsta markið fyrir Arsenal Hjólhestur hjá Palhinha og markaveisla hjá Skjórunum Segir að Wirtz væri betur borgið hjá Bayern en Liverpool Ragnar er fyrir ofan bankastjórann í Fantasy-deild Kaupþings Ömurlegar fréttir fyrir unga Liverpool-nýliðann Sjá meira