Minnir á ólýðræðislegar hefðir 18. janúar 2010 03:00 Steingrímur Jóhann Sigfússon Flokksráðsfundur VG ályktaði um fjöda málefna um helgina, meðal annars um sparisjóði, votlendi og farfugla. Flokkurinn vill sem fyrr standa utan hernaðarbandalaga.fréttablaðið/
Tryggja þarf að stjórn sem kennir sig við velferð stýri landinu áfram til að vega upp á móti frjálshyggju síðustu ára, segir í ályktun flokksráðs VG frá því á laugardag. Stjórn VG og Samfylkingar hafi þegar náð miklum árangri. Flokkurinn þurfi á öllu sínu þreki og samstöðu að halda í baráttu fyrir réttlátara samfélagi. Það að tiltekinn hluti þjóðarinnar geti knúið fram þjóðaratkvæðagreiðslu er sagt brýnt framfaramál til að „ryðja burt þeim ólýðræðislegu hefðum sem fyrri ríkisstjórnir hafa fest í sessi,“ segir í ályktuninni, en ekki er minnst á Icesave berum orðum. Þá er andstaða flokksins við aðild að ESB ítrekuð, án þess að tekin sé afstaða til gjaldeyrismála. Meðal tillagna fundarins er að blaðamönnum verði tryggð „uppsagnarvernd“, að Míla, grunnnet Símans, komist í ríkiseigu og öll stærri orkufyrirtæki verði í almannaeigu. Þá skal hefja undirbúning til að tryggja eignarhald þjóðarinnar á auðlindum til lands og sjávar. Þeim verði ekki fórnað í kreppunni. Flokksráðið fordæmir einkavæðingu í heilbrigðisrekstri og er á móti fyrirhugaðri endurskipulagningu innan stjórnarráðsins, verði hún á kostnað sjávarútvegs- og landbúnaðarráðuneytis.- kóþ
Mest lesið Árásir stóðu yfir í rúma tólf tíma Erlent Skora á Snorra að gefa kost á sér Innlent Fjöldi fórnarlamba eftir skothríð og íkveikju í kirkju mormóna Erlent Lögreglan með málið til rannsóknar Innlent Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Innlent Með bílinn fullan af fíkniefnum Innlent Banna dróna yfir Danmörku Erlent Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Innlent Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Innlent Segist hafa hafnað boði til einkaeyju Epsteins Erlent Fleiri fréttir Báturinn áður sokkið í sömu höfn og án skýringar Drukkinn ökumaður keyrði á þrjá bíla og reyndi að stinga af Um 200 nemendur eru í lögreglunámi á Akureyri Skora á Snorra að gefa kost á sér Bíll valt eftir flótta undan lögreglu og þrír slösuðust Reiknað með afskiptum af öllum samkomum Vítisengla Lögreglan með málið til rannsóknar Áframhaldandi aðgerðir gegn Vítisenglum Geirfinnsmálið, orkuöflun, gjaldeyrishöftin og íslenskan á Sprengisandi Drógu aflvana bát í land í Neskaupstað Með bílinn fullan af fíkniefnum „Það verður boðið fram í nafni VG“ Loka aftur fyrir umferð á slóðum Vítisengla „Þjóðaröryggisráð er ekki upp á punt“ Rak frá Bretlandi til Íslands á einum mánuði Bátur sekkur við Hafnarfjarðarhöfn Ellilífeyrisþegar sá hópur sem hafi það einna best Rándýr og stórbrotin afmæli hitta ekki í mark hjá krökkunum Þór sækist eftir endurkjöri Furðar sig á þjóðaröryggisráði og rándýr barnaafmæli Aftur flagnar Vesturbæjarlaug: „Eins og hún sé með skallablett“ Þyrlan kölluð út vegna vélsleðaslyss á Langjökli „Gervigreind er líka fyrir heimilið“ Hringvegurinn opnaður á ný klukkan 17 Snæfellsnes orðið að vistvangi UNESCO „Stór húsnæðis- og efnahagspakki“ á leiðinni Afplána líklegast í fjögur til fimm ár á Litla Hrauni Þungir dómar ekki óvæntir og fyrsti vistvangur landsins Ferðamaður réðst á leiðsögukonu: „Ísland hefur brugðist mér“ Byrjað að moka í Hringveginn en talsverð vinna framundan Sjá meira