Innlent

Ógnuðu öryggisvörðum í Kringlunni

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Öryggisverðir í Kringlunni kölluðu eftir aðstoð lögreglu.
Öryggisverðir í Kringlunni kölluðu eftir aðstoð lögreglu.
Lögreglumenn handtóku tvo unga menn í Bogahlíð nú á fjórða tímanum í dag. Samkvæmt heimildum Vísis höfðu þeir ógnað öryggisvörðum í Kringlunni með einhverskonar vopni og kölluðu öryggisverðir eftir aðstoð lögreglu. Eftir það hlupu þeir á brott en náðust fljótt.

Samkvæmt heimildum Vísis höfðu mennirnir verið staðnir að búðarhnupli í Kringlunni og brugðust ókvæða við þegar öryggisverðirnir hugðust stöðva þá við iðju sína.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×