Innlent

Júlíus Vífill náði öðru sæti - búið að telja

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Júlíus Vífill verður í öðru sæti á lista sjálfstæðismanna í vor. Mynd/ GVA.
Júlíus Vífill verður í öðru sæti á lista sjálfstæðismanna í vor. Mynd/ GVA.
Hanna Birna Kristjánsdóttir fékk rúm 84% gildra atkvæða í fyrsta sæti sjálfstæðismanna í prófkjörinu fyrir sveitastjórnarkosningarnar. Talningu er lokið. Júlíus Vífill Ingvarsson náði öðru sæti og í því þriðja er Kjartan Magnússon. Á kjörskrá voru 19.715 manns. Atkvæði greiddu 7.173 en gild atkvæði voru 6.847. Ógild atkvæði og auð voru 317. Af þeim voru auð atkvæði 9.





Niðurstaða prófkjörsins var þessi:

1. Hanna Birna Kristjánsdóttir með 5.746 atkvæði í 1. sæti.

2. Júlíus Vífill Ingvarsson með 1.816 atkvæði í 1.-2. sæti.

3. Kjartan Magnússon með 2.092 atkvæði í 1.-3. sæti.

4. Þorbjörg Helga Vigfúsdóttir með 2.519 atkvæði í 1.-4. sæti.

5. Gísli Marteinn Baldursson með 2.725 atkvæði í 1.-5. sæti.

6. Geir Sveinsson með 3.049 atkvæði í 1.-6. sæti.

7. Áslaug María Friðriksdóttir með 3.353 atkvæði í 1.-7. sæti.

8. Jórunn Frímannsdóttir með 3.749 atkvæði í 1.-8. sæti.

9. Hildur Sverrisdóttir með 3.892 atkvæði í 1.-9. sæti.

10. Marta Guðjónsdóttir með 3.503 atkvæði í 1.-9. sæti.








Tengdar fréttir

Búið að telja rúm 6100 atkvæði - staðan óbreytt

Staðan í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins er óbreytt eftir að 6137 atkvæði hafa verið talin. Hanna Birna Kristjánsdóttir er með um það bil 85% greiddra atkvæða í fyrsta sæti listans.

Hanna Birna efst - Júlíus Vífill annar

Hanna Birna Kristjánsdóttir er efst í prófkjöri sjálfstæðismanna eftir að fyrstu tölur hafa verið lesnar. Júlíus Vífill Ingvarsson er í öðru sæti, en fast á hæla honum fylgir Kjartan Magnússon.

Áslaug María komin upp fyrir Jórunni

Áslaug M. Friðriksdóttir hefur náð sjöunda sæti af Jórunni Frímannsdóttur þegar talin hafa verið 4797 atkvæði af um það bil 7200 í prófkjöri sjálfstæðismanna í Reykjavík fyrir borgarstjórnarkosningarnar.

Jórunn Frímannsdóttir: Þetta eru klárlega vonbrigði

„Þetta eru klárlega vonbrigði,“ segir Jórunn Frímannsdóttir borgarfulltrúi sem er í áttunda sæti lista sjálfstæðismanna fyrir næstu borgarstjórnarkosningar, ef marka má stöðuna eins og hún er núna.

Júlíus Vífill: Of snemmt að fagna

„Ég er afskaplega þakklátur fyrir þann stuðning sem fram kemur í þessum fyrstu tölum. Maður vill náttúrlega ekki byrja að fagna neinum niðurstöðum fyrr en þær liggja endanlega fyrir,“ segir Júlíus Vífill Ingvarsson sem er í öðru sæti á lista sjálfstæðismanna eftir að búið er að telja um helming atkvæða.

Hanna Birna: Stuðningsyfirlýsing við borgarstjórnarflokkinn

„Ég er mjög þakklát fyrir þann stuðning sem ég fæ í gegnum þetta prófkjör, en ég er sérstaklega ánægð með það hversu sterkur listinn er og hversu vel sjálfstæðismenn hafa valið í þessu prófkjöri,“ segir Hanna Birna Kristjánsdóttir, borgarstjóri sem er í efsta sæti á lista sjálfstæðismanna eftir prófkjör flokksins í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×