Innlent

Júlíus Vífill: Of snemmt að fagna

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Júlíus Vífill er þakklátur vinum og vandamönnum fyrir stuðninginn. Mynd/ Valgarður.
Júlíus Vífill er þakklátur vinum og vandamönnum fyrir stuðninginn. Mynd/ Valgarður.
„Ég er afskaplega þakklátur fyrir þann stuðning sem fram kemur í þessum fyrstu tölum. Maður vill náttúrlega ekki byrja að fagna neinum niðurstöðum fyrr en þær liggja endanlega fyrir," segir Júlíus Vífill Ingvarsson sem er í öðru sæti á lista sjálfstæðismanna eftir að búið er að telja um helming atkvæða.

Stuðningur vina og fjölskyldu Júlíusar Vífils er honum ofarlega í huga. „Að baki mér hefur staðið ótrúlega sterkur og góður hópur vina og vandamanna sem ég stend í þakkarskuld við og ég e rauðvitað þakklátur borgarbúum fyrir hafa kunnað að meta mín störf í borgarstjórn á þessu kjörtímabili," segir Júlíus Vífill.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×