Formaður VG á Akureyri segir sig úr flokknum 19. febrúar 2010 12:52 Guðbergur Egill Eyjólfsson.
Guðbergur Egill Eyjólfsson hefur ákveðið að segja af sér formennsku í svæðisfélagi Vinstri hreyfingarinnar græns framboðs á Akureyri og nágrenni og um leið að segja sig úr flokknum. Ástæðan er afstaða VG til ýmissa mála, þar á meðal stuðningur þingmanna við aðildarumsókn að ESB, og þeir starfshættir sem tíðkast innan flokksins. Þá gagnrýnir Guðbergur hvernig stillt var upp í fjórða sæti á lista VG fyrir komandi bæjarstjórnarkosningar á Akureyri. „Það sem endanlega rekur mig til þessa, er sá gjörningur að handvirkt hefur verið stillt upp einstaklingi í fjórða sæti á framboðslista flokksins á Akureyri fyrir sveitarstjórnarkosningarnar sem ekki tók þátt í forvali flokksins (fyrstu sex sætin voru kosin með bindandi kosningu). Mér hugnast ekki slík vinnubrögð. Sérstaklega ekki nú á tímum þar sem krafa um aukið lýðræði er réttilega mjög hávær," segir Guðbergur í tilkynningu. „Ég hef hingað til reynt að halda skoðunum mínum á lofti sem samræmast þeim vinstri hugsjónum sem Vinstri hreyfingin grænt framboð hefur gefið sig út fyrir að standa fyrir. Ég hef getað réttlætt veru mína í flokknum með því að sannfæra sjálfan mig um að ég gæti með veru minni haft áhrif til betri vinnubragða og róttækari vinstri stefnu án þess að vera beinn þátttakandi í þeim gjörningum þar sem flokkurinn hefur farið út af sporinu. Ef ég hefði tekið þátt í að samþykkja og vinna við lista sem ég tel settan saman á ólýðræðislegan hátt væri ég orðinn beinn þátttakandi í því sem ég hef verið að gagnrýna. Þar sem nánast allt annað forystu fólk flokksins á Akureyri sá ekkert athugavert við þessa framkvæmd sé ég enga aðra leið en að segja af mér og hætta í flokknum."
Mest lesið Óttast að færri leiti sér aðstoðar Innlent Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Innlent „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Innlent Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár Innlent „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ Innlent Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Innlent Robinson hafi lýst eftirsjá Erlent Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Innlent Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Innlent „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Innlent Fleiri fréttir Ísland sé aðkomuleið Bandaríkjamanna að norðurslóðum Óttast að færri leiti sér aðstoðar Íbúar Flóahrepps vilja ekki sameinast öðrum Kaupin hjá Gærunum gerast í fláningssalnum „Mikið hitaefni en þessi texti á að vera hlutlaus“ ESB-deilan harðnar eftir ummæli erlendra ráðamanna Segja Reykjanesbæ greiða þremur bæjarstjórum laun Hundurinn sem fannst hafði verið týndur í tíu ár „Þá sé þetta sem næst útilokað“ Lögreglan þekkti óprúttna aðila á upptökum Krafa Íslands um undanþágur vekur spurningar í ESB Segir skoðanir Ólafs Ragnars ekkert ofboðslega fréttnæmar Opna fyrir umferð á morgun Fjárhagslegt tjón netbrota á árinu nemur hundruðum milljóna Namibíumenn krefjast skaðabóta í Samherjamálinu Hafnaði á skilti Þessi sóttu um starf bæjarstjóra Fjallabyggðar Starfshópur um gervigreind tekinn til starfa Kærir Iðufólk fyrir líkamsárásir, þjófnað og hótanir Öll málning þrifin af kirkjutröppunum Energy Observer komið til Reykjavíkurhafnar „Eldgamlir bekkir og kompur sem hjúkrunarfræðingum var holað í“ Sendi fimmtán ára skilaboð og typpamynd: „Riða i kvöld?“ Strandaði á skeri rétt utan við Húsavík Breskt herskip siglir um Hvalfjörð „Kemur ekki á óvart að þetta komi fram í Morgunblaðinu“ Fannar leiðir hagræðingu í Reykjanesbæ Sjávarútvegurinn og ESB, vopnagjöf og heilbrigðismál Hanna Katrín segir rasista vilja endurskilgreina hlutverk íslenska fánans Skemmdarvargarnir enn ófundnir Sjá meira