Telur ummæli Sveins Andra um barnaníð ekki sæma lögmanni 23. september 2010 21:11 Sveinn Andri segir að Facebook-siðan hans sé ekki fyrir teprukerlingar og þá sem séu uppfullir af vandlætingu og skinhelgi.
Hæstaréttarlögmaður gagnrýnir Svein Andra Sveinsson, hæstaréttarlögmann, fyrir ummæli hans á samskiptavefnum Facebook. Þar sagðist Sveinn Andri upplifa það sem höfnun að hafa ekki verið áreittur kynferðislega af presti í æsku og bætti broskalli við. Kynferðisbrot gegn börnum hafa talsvert verið til umræða undanfarnar vikur enda mörg gömul mál verið að koma upp á yfirborðið. Þorbjörg I. Jónsdóttir, hæstaréttarlögmaður, sagði í síðdegisútvarpinu á Rás 2 í dag erfitt að segja afdráttarlaust til um hvort ummælin brjóti í bága við siðareglur lögmanna. Sjálfur segir Sveinn Andri að síðan hans sé ekki fyrir teprukerlingar og þá sem séu uppfullir af vandlætingu og skinhelgi.Gantast með alvarlegt mál Þorbjörg benti á að í siðreglum lögmanna sé fjallað um góða lögmannshætti og í 2. grein sé talað um að lögmaður skuli gæta heiðurs lögmannastéttarinnar, jafnt í lögmannsstörfum sínum sem öðrum athöfnum. „Þannig að siðareglurnar eiga ekki eingöngu við þegar við erum að vinna sem lögmenn. Þarna er Sveinn Andri að tjá sig á Fésbókinni sinni. Þannig að mér finnst að þessi regla geti allt eins átt við það sem hann segir þar. Þessi ummæli eru ekki sæmandi hæstaréttarlögmanni." Þá sagði hún: „Mér finnst það mjög algengt í mínum störfum sem lögmaður að fólk samkenni einn lögmann við annan þannig að um leið og einn lögmaður gerir eitthvað sem telst vera ámælisvert þá er það látið yfir okkur hina ganga. Mér finnst því skipta máli hvernig kollegar mínir koma fram í fjölmiðlum eða annars staðar. Þarna er auðvitað verið að tala um mjög alvarleg mál."Skortir húmor Fjölmargir hafa lagt orð í belg á síðu Sveins Andra í dag og sitt sýnist hverjum. Sjálfur bætti hann eftirfarandi athugasemd við seinnipartinn í dag: „Af gefnu tilefni skal áréttað að feisbók þessi er ekki við hæfi hræsnara, teprukjellinga og annarra sem uppfullir eru af heilagri vandlætingu og skinhelgi. Svo ekki sé minnst á þá sem ekki hafa skopskyn." Hægt er að skoða Facebook-síðu Sveins Andra hér.
Mest lesið Trump lokar Kennedy-miðstöðinni í tvö ár „vegna endurbóta“ Erlent Hljóp upp í fjall eftir árekstur og neitaði að koma niður Erlent „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Innlent Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Innlent Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Innlent Hinn fimm ára Liam laus úr haldi og kominn heim Erlent „Getur Mette-Marit orðið drottning eftir þetta?“ Erlent Leystu upp alla stjórnmálaflokka landsins Erlent Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Innlent Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Innlent Fleiri fréttir Samstillt þingefnd vill taka ESB út úr orðalagi nýrrar stefnu Um 125 börn á þyngdarstjórnunarlyfjum og 500 með fitulifur Gagnagrunnur heimilisfanga ICE-liða hýstur á Íslandi Dyravörður tók gest kverkataki Geta stórbætt þjónustu fyrir þau sem greinast með krabbamein Segir af sér þingmennsku að ákveðnu skilyrði uppfylltu Sáttamiðlun úrræði sem væri alls ekki fyrir alla þolendur Spennt að mæta fyrrverandi yfirmanni í kappræðum Dagur kvenfélagskonunnar er í dag 1. febrúar Líkurnar á lækkun „mjög litlar“ Mótmæla og biðla til utanríkisráðherra Nýir oddvitar og sáttameðferð í kynferðisbrotamálum Töframaður lúbarinn í Garðabæ: „Ég hélt að þetta væri búið“ Listamenn safna fyrir 10 ára dreng á Selfossi í dag „Ég spyr hvernig hefði farið ef ég hefði ekki lifað þetta af“ Sprengisandur: Laxeldi, verðbólga og falsfréttir Grunaður um stórfellda líkamsárás „Á yfir höfði sér kærur vegna fjölda umferðarlagabrota“ Ölvuð kona grunuð um að valda umferðarslysi á rafhlaupahjóli Hlýnandi veður í dag og „meinlaus austanlægð“ í kortunum Hilmar Gunnarsson er oddviti í Mosfellsbæ Vilhjálmur Árnason leiðir Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ Baráttan hafi verið Viðreisn til sóma „Lúxusvandamál“ að velja og hafna á listann Stöðvuðu stolinn bíl með naglamottu eftir eftirför um alla borg Sjálfstæðismenn í Reykjanesbæ velja sér oddvita „Vinna er heilsuefling“ Björg sökuð um brot á kosningareglum Viðreisnar Blótað í Grindavík á nýjan leik Vaktin: Björg Magnúsdóttir leiðir lista Viðreisnar í borginni Sjá meira