Kveikti í sér eftir að hafa sært fimm börn 30. apríl 2010 11:36 Undanfarna þrjá daga hafa vopnaðir menn ráðist inn í kínverska leikskóla og sært leikskólabörn. Mynd/AFP
Karlmaður réðst inn í leikskóla í Kína í nótt vopnaður hamri og særði fimm börn áður en hann framdi sjálfsmorð. Þetta er í þriðja sinn á jafn mörgum dögum þar sem ráðist er á kínversk leikskólabörn. Enginn lést í árásinni en sex voru fluttir á sjúkrahús til aðhlynningar, þar af fimm börn. Árásarmaðurinn er bóndi á fimmtugsaldri en ekki vitað af hverju hann réðst inn í leikskólann sem er í norðausturhluta Kína. Starfsmönnum tókst að bjarga tveimur börnum sem maðurinn hafði gripið áður en hann kveikti í sjálfum sér. Þetta er þriðja árásin á jafn mörgum dögum sem kínversk börn verða fyrir. Í gær ruddist karlmaður inn í leikskóla í austanverðu landinu og stakk 28 börn og þrjá starfsmenn með hnífi. Enginn lést í árásinni en fjögur börn slösuðust alvarlega. Á miðvikudaginn stakk þriðji maðurinn 16 börn og einn leikskólakennara í suðurhluta Kína. Sama dag var 42 ára gamall karlmaður tekinn af lífi fyrir að myrða átta leikskólabörn í síðasta mánuði. Sá notaði byssu við verknaðinn. Maðurinn sagði fyrir rétti að hann hefði myrt börnin vegna þess að hann hefði verið í uppnámi vegna konu sem hefði slitið sambandi við hann. Undanfarin sex ár hafa árásir sem þessar færst í vöxt í Kína og hafa flestir árásarmannanna átt við geðræn vandamál að stríða eða talið sig eiga einhverra harma að hefna. Kínversk yfirvöld hafa fyrirskipað skólastjórnendum að auka öryggisgæslu sína til að tryggja öryggi barna og starfsmanna.
Mest lesið Biðin eftir leikskólaplássi kostaði móður vinnuna Innlent „Þegar þú verður ráðherra verður þú að tala af ábyrgð“ Innlent Fráfarandi starfsmaður Sólheima: „Eins og ég sé að sleppa frá einangruðu einræðisríki“ Innlent Nennti ekki að tala við „atvinnubetlara“ og sagði henni að fokka sér Innlent Hildur vill leiða áfram en Guðlaugur loðinn í svörum Innlent Táningur rekur veitingastað: „Maður verður að hafa fyrir lífinu“ Innlent Stöðvarskyldan snýr aftur: Eykur öryggi farþega og neytendavernd Innlent Trump fær konunglegar móttökur í Bretlandi Erlent Ekkert bólaði á ræðumanni Innlent Ótrúlegur árekstur: „Ég sá bara dekk og púströr“ Innlent Fleiri fréttir Trump fær konunglegar móttökur í Bretlandi „Markmið ríkisstjórnar Ísraels er augljóst þegar við höldum áfram að verða vitni að tortímingu Palestínumanna“ Fara fram á dauðarefsingu yfir Robinson Nálægt því að draga úr flæðinu vegna drónaárása Hafa engar skýringar á margföldum gammablossa Enn ein ásiglingin við rifið umdeilda Hryðjuverkaákærum vísað frá Samþykkja að framselja Úkraínumann vegna Nord Stream-skemmdarverkanna Trump-liðar heita hefndum Nefnd SÞ segir Ísraelsmenn hafa framið þjóðarmorð á Gasa Látlausar sprengjuárásir á Gasa í nótt Trump höfðar 15 milljarða dala mál gegn New York Times Sagði frá fyrirætlunum sínum í SMS-i fyrir morðið Bandaríkin lýstu yfir fullum stuðningi við fyrirætlanir Ísraelsstjórnar Drápu þrjá í annarri árás á meinta smyglara Conor McGregor dregur forsetaframboðið til baka NATO og Rússland „augljóslega“ í stríði Stórauka útgjöld til varnarmála Tinder-svindlarinn handtekinn í Georgíu Fordæma ummæli Musk á mótmælum gegn útlendingum Íslendingur dæmdur í þrettán ára fangelsi í Rússlandi Kallaði eftir aftöku heimilislauss fólks: „Drepa þau bara“ Svarar til saka fyrir morð á „blóðuga sunnudeginum“ AfD þrefalda fylgi sitt í fjölmennasta sambandslandinu Brueckner neitar að ræða við bresk lögregluyfirvöld Kalla rússneska sendiherrann á teppið Segir byssumanninn aðhyllast vinstri hugmyndafræði Fordæmir notkun fánans í þágu ótta og rasisma Trans kærasta Robinsons hafi verið „skelfingu lostin“ Lögreglumenn með brotnar tennur og harðorður Elon Musk Sjá meira
„Markmið ríkisstjórnar Ísraels er augljóst þegar við höldum áfram að verða vitni að tortímingu Palestínumanna“