Erlent

Með hníf í hausnum

Óli Tynes skrifar
Edeilson með röntgenmynd af hnífnum sem var í höfði hans í þrjú ár.
Edeilson með röntgenmynd af hnífnum sem var í höfði hans í þrjú ár. Mynd/AP

Fyrir þrem árum lenti Edilson do Nacimento í slagsmálum á krá í heimabæ sínum í Brasilíu. Síðan fékk hann tíðan höfuðverk.

Sem kannski er ekki svo skrýtið. Læknar fjarlægðu á dögunum 10 sentimetra langan hníf úr höfði hans. Aðgerðin tókst vel og Nascimento er óðum að jafna sig.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×