Lántaki hótaði að mæta með haglabyssu 19. júní 2010 19:00
Reiður lántaki hótaði starfsmanni fjármögnunarfyrirtækis að snúa til baka á skrifstofuna með haglabyssu - væru mál hans ekki leyst. Stjórnendur fjármögnunarfyrirtækjanna eru slegnir yfir þeirri yfirlýsingu ríkisstjórnarinnar í gær að ekki verði gripið sérstakra aðgerða vegna dóms Hæstaréttar í myntkörfumálunum. Fyrirtækin hafa reyndar verið sökuð um að ganga of hart fram í innheimtuaðgerðum og braust út mikil reiði meðal viðskiptavina eftir dómur hæstaréttar lá fyrir. Samkvæmt heimildum fréttastofu hefur svívirðingum rignt yfir starfsmenn þessara fyrirtækja og í einu tilfelli hótaði viðskiptavinur að mæta á svæðið með haglabyssu. Innheimta gengistryggðra lána er í algjöru uppnámi þar sem í dómi hæstaréttar er ekki að finna neinar leiðbeiningar um uppgjör þessara lána. Margir lögspekingar líta svo á lánin séu nú óverðtryggð krónulán með þeim erlendum vöxtum sem samið var um í upphafi. Þeir vextir eru mun lægri en hefðbundir vextir á krónulánum. Þeir sem tóku krónulán þurfa nú einir að bera þungann af hruni krónunnar í gegnum verðtrygginguna og margir spyrja sig um réttlæti þess. Talað er um tvær leiðir í þessu samhengi, annað hvort að festa verðtryggingu við gengislánin eða setja á þau óverðtryggða vexti í samræmi við það sem gengur og gerist á íslenskum lánamarkaði. Fundað verður um málið á sameiginlegum fundi efnhags- og skattanefndar og Viðskiptanefndar Alþingis á mánudag. Þá hafa starfsmenn fjármögnunarfyrirtækjanna verið að störfum í allan dag en ef ekki verður fundinn einhver málamyndun er ljóst að tap fyrirtækjanna verður gríðarlegt.
Mest lesið Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Innlent Hröpuðu til bana í skoðunarflugi yfir Nazca-línurnar Erlent Sumarhús alelda á Þingvöllum Innlent Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Innlent Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Innlent Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Innlent Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Innlent Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Innlent Guðmundur Felix kominn með krabbamein Innlent Fleiri fréttir Myndir: Heimilisfólk komst út heilt á húfi Sumarhús alelda á Þingvöllum Tap vegna ótímabærra veðurspáa hlaupi á milljónum Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Gekk um með barefli öskrandi og ógnaði Minkur í Vestmannaeyjum tilkynntur til Mosfellsbæjar Gagnrýna meðferð lögreglu á áhöfninni Hvorki tilkynnt um kynferðisbrot né líkamsárás fyrstu nóttina Líður eins og Gísli á Uppsölum sé kominn heim Slasaðist á fæti uppi á hálendi Veðrið „eins og eftir pöntun“ Guðmundur Felix kominn með krabbamein Blöskrar hegðun ferðamanna við Sólheimajökul Afdrif Bandero og hættulegt ástand í Dölum Yfirheyrslum lokið og ekki gerð krafa um gæsluvarðhald Sex fíkniefnamál komu upp í Eyjum „Ég er skrímsli“ Landhelgisgæslan sótti mann í Vestmannaeyjum Horfði á fallega húsið sitt fuðra upp Skipulagður brotahópur kúgaði íslenskan pilt með gervigreindarmyndbandi Regnboginn kominn aftur á tröppurnar Hálf áhöfnin bönnuð frá Evrópu í tvö ár Ótrúleg eftirför, lögregla í beinni og unglingur kúgaður Paul Watson afar ánægður með handtökuna Reiðhjólamaður fluttur á slysadeild eftir árekstur Leita vitna að líkamsárás á Kótelettunni Búast við fjölmennasta Innipúka til þessa Aldrei liðið að öryggi sjómanna sé ógnað Alelda bíll í Reykjanesbæ Jákvæð teikn í leitinni að minkunum Sjá meira
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent
Lét lögreglu fá rauðtússaðan miða: „Ekki einhverjir fylliraftar innan úr miðborg Reykjavíkur“ Innlent