Innlent

VÍS er stærsti eigandi Pressunnar

Björn Ingi Hrafnsson er annar stærsti eigandi Vefpressunnar, á eftir VÍS
Björn Ingi Hrafnsson er annar stærsti eigandi Vefpressunnar, á eftir VÍS

Vátryggingafélag Íslands hf. (VÍS) er stærsti eigandi Vefpressunar ehf. með um 33% eignarhlut. Vefpressan rekur vefmiðilinn pressan.is . Aðrir eigendur eru Björn Ingi Hrafnsson (26,37%), Salt Investment (23,08%) og Arnar Ægisson (17,58%).

Þetta kemur fram á vef Viðskiptablaðsins. Þar er vitnað í ársreikninga Vefpressunnar vegna síðasta árs sem var skilað inn til ársreikningaskrár þann 17.september.

VÍS er að fullu í eigu Existu, sem nýverið var tekið yfir af kröfuhöfum. Fyrir það voru aðaleigendur Existu bræðurnir Lýður og Ágúst Guðmundssynir. Salt Investment er í eigu Róberts Wesmann.

Samkvæmt upplýsingum Viðskiptablaðsins úr ársreikningaskrá námu rekstrartekjur Pressunnar 22,3 milljónum króna en rekstrargjöld 53 milljónum. Þar af fara 29,9 milljónir í aðkeypta þjónustu en 7,2 milljónir í launagreiðslur.

Innborgað hlutafé nam 44,5 milljónum króna á árinu en ekki kemur fram í ársreikningi hversu mikið hver borgaði inn í félagið. Eigið fé stóð í 14,2 milljónum króna. Þar af leiðir að tapið var 30,3 milljónir króna. Skammtímaskuldir Vefpressunnar námu um 12 milljónum króna á síðasta ári.

Vefurinn Pressan.is fór í loftið í ársbyrjun 2009.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×