Enski boltinn

Skilaboð Arsene Wenger til Real Madrid: Ekki hringja í mig

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Arsene Wenger, stjóri Arsenal.
Arsene Wenger, stjóri Arsenal. Mynd/Getty Images

Arsene Wenger, stjóri Arsenal, talaði um það á léttu nótunum á blaðamannfundi í gær að stjórnarmenn spænska liðsins Real Madrid ættu að sleppa því að hringja í sig í sumar þegar þeir fara að leita að eftirmanni Manuel Pellegrini.

Það lítur allt út fyrir það að dagar Manuel Pellegrini sem þjálfara Real Madrid séu taldir eftir að liðið datt út úr sextán liða úrslitum Meistaradeildarinnar sjötta árið í röð.

„Ekki hringja í mig og látið mig bara í friði," sagði Arsene Wenger glottandi og bætti síðan við: „Ég klára alltaf mína samninga og ég er með samning til ársins 2011," sagði Wenger. Florentino Pérez, forseti Real Madrid, reyndi að fá Wenger til liðsins síðasta sumar.

„Þetta er versta hugsanlegi tímapunktur til að fara tala aftur um það mál. Ég einbeiti mér aðeins að liði Hull þessa stundina. Þeir eru kannski ekki alveg sama glamúr liðið og Real Madrid en þeir eru mun mikilvægari í mínu lífi í dag," sagði Wenger á blaðamannafundi fyrir deildarleikinn á móti Hull á morgun.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×