Enski boltinn

Robinho gagnrýnir Mancini

Rafnar Orri Gunnarsson skrifar

Brasilíski framherjinn, Robinho, gagnrýnir Roberto Mancini, stjóra Manchester City, en hann segir að Mancini hafi tekið allt sjálfstraust úr sér er hann skipti honum af velli hvað eftir annað í leikjum City í vetur.

Robinho var í kjölfarið lánaður til heimalands síns og spilar nú með Santos. Þar hefur hann spilað frábærlega, með fjögur mörk í sex leikjum.

„Þegar ég spilaði með Manchester City, þá vissi ég að á ákveðnum tímapunkti kæmi skipting og ég færi út af því að þjálfarinn vildi ekki hafa mig inn á. Þá byrjaði ég að missa trú á á sjálfum mér inn á vellinum," sagði Robinho.

Síðasti leikur Robinho undir stjórn Mancini var sérstakur því að Robinho kom inn á sem varamaður en var síðan skipt út af stuttu síðar fyrir annan varamann. Robinho segir að það hafi verið mikil mistök hjá Macini.

„Ég talaði við hann eftir leikinn. Hann viðurkenndi að það hefði verið rangt að taka mig af velli. Þetta var í fyrsta skipti sem ég hef þurfti að ganga í gegnum slíkt á mínum ferli en einhvern tímann er allt fyrst.

„Þetta var ekki skortur á virðingu. Ég held að þetta hafi bara verið skortur á getu þjálfarans," sagði Robinho.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×